Viðskipti innlent

Brynhildur aftur til starfa hjá Neytendasamtökunum

Atli Ísleifsson skrifar
Brynhildur Pétursdóttir.
Brynhildur Pétursdóttir. Neytendasamtökin
Neytendasamtökin mun á næstu dögum opna skrifstofu á Akureyri, í Alþýðuhúsinu við Skipagötu.

Brynhildur Pétursdóttir, fyrrverandi alþingismaður Bjartrar framtíðar, verður í forsvari fyrir skrifstofunni.

Brynhildur starfaði um árabil hjá samtökunum og sat í stjórn þeirra áður en hún tók sæti á Alþingi. Veitti hún skrifstofunni á Akureyri forstöðu en skrifstofunni var lokað fyrir nokkrum árum. Brynhildur mun ennfremur ritstýra Neytendablaðinu og hafa umsjón með heimasíðu samtakanna.

Í tilkynningu frá samtökunum segir að Brynhildur sé þessa dagana að koma sér fyrir á nýju skrifstofunni og fljótlega verði greint frá opnunartíma á Akureyri á heimasíðu samtakanna.

„Brynhildur Pétursdóttir hefur mjög góða yfirsýn yfir málefni og hagsmunamál neytenda. Hún býr yfir umfangsmikilli reynslu bæði af vettvangi Neytendasamtakanna og á Alþingi Íslendinga. Hún er öflugur liðsmaður í baráttunni fyrir réttindum og hagsmunum neytenda og ég býð hana hjartanlega velkomna til starfa.“






Fleiri fréttir

Sjá meira


×