Enski boltinn

Zlatan bestur að mati stuðningsmanna

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Zlatan léttur með Rooney.
Zlatan léttur með Rooney. vísir/getty
Zlatan Ibrahimovic, framherji Man. Utd, hefur verið valinn besti leikmaður ensku úrvalsdeildarinnar í desember hjá knattspyrnuunnendum.

Nærri 64 þúsund atkvæði bárust í kosningunni og Zlatan fékk rúmlega 24 þúsund af þessum atkvæðum.

Adam Lallana, leikmaður Liverpool, varð annar í kjörinu með tæplega 18 þúsund atkvæðo og Cesar Azpilicueta, varnarmaður Chelsea, varð þriðji með um 12 þúsund atkvæði.

Sérfræðingar á vegum Sky Sports velja sex leikmenn í hverjum mánuði sem áhorfendur geta síðan kosið um í þessu kjöri.

Zlatan skoraði sex mörk í sjö leikjum í desember og var frábær í liði Man. Utd sem er búið að vinna sjö leiki í röð.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×