Hlaupatölur Adam Lallana í sérflokki Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 3. janúar 2017 21:00 Adam Lallana hleypur meira en allir aðrir í enska boltanum. Vísir/Getty
Það liðu bara tæpir tveir sólarhringar á milli leikja Liverpool og því voru hlaupatölur Adam Lallana, leikmanns Liverpool-liðsins, enn merkilegri fyrir vikið. Liverpool mætti Manchester City á Anfield á Gamlárskvöld og spilaði svo við Sunderland á útivelli á Leikvangi Ljóssins í gær. Adam Lallana spilaði báða leikina og slakaði aldrei á. Tölfræðin sýnir það svart á hvítu. Adam Lallana hljóp 12,88 kílómetra í sigrinum á Manchester City sem er mjög mikið en hann gerði enn betur á móti Sunderland þegar hann hljóp 13,22 kílómetra. Sky Sports tók það saman hvaða leikmenn í ensku úrvalsdeildinni hlupu mest í einum leik í þeim leikjum sem fóru fram frá 31. desember til 2. janúar. Adam Lallana var ekki bara á toppnum heldur var hann í tveimur efstu sætunum á þeim lista. Mathieu Flamini hjá Crystal Palace komst næstur honum. Adam Lallana hefur blómstrað í hápressunni hans Jürgen Klopp og er orðinn einn allra mikilvægasti leikmaður Liverpool-liðsins eftir að Þjóðverjinn tók við. Auk þess að hlaupa og hlaupa og hlaupa þá er Adam Lallana bæði að skora mörk og leggja upp mörk fyrir félaga sína í Liverpool-liðinu.Hér fyrir neðan má sjá listann yfir þá leikmenn sem hlupu mest þegar liðin spiluðu aðeins með tveggja daga millibili. 2. janúar Adam Lallana, Liverpool (á móti Sunderland) 13,22 km 31. desember Adam Lallana, Liverpool (á móti Man City) 12,88 km 1. janúar Mathieu Flamini, Crystal Palace (á móti Arsenal)12,67 km 2. janúar George Boyd, Burnley (á móti Man City) 12,62 km 31. desember George Boyd, Burnley (á móti Sunderland) 12,56 km 2. janúar J Ward-Prowse, Southampton (á móti Everton) 12,54 km 2. janúar Robert Snodgrass, Hull City (á móti West Brom) 12,40 km 2. janúar Fabio Borini, Sunderland (á móti Liverpool) 12,30 km 2. janúar Andy King, Leicester (á móti Middlesbrough) 12,23 km 2. janúar Sebastian Larsson, Sunderland (á móti Liverpool) 12,18 km
Enski boltinn Mest lesið Tárvot Ásta sátt í hjarta sínu með ákvörðunina Íslenski boltinn UEFA hefur rannsókn vegna kvartana Tel Aviv Fótbolti Njarðvík semur við eina unga og efnilega Körfubolti Hætti á samfélagsmiðlum og hættir ekki að skora Enski boltinn Varði mark botnliðsins en bar samt af Íslenski boltinn Daníel Ingi framlengir hjá Nordsjælland Fótbolti Gylfi Þór ekki í hóp Vals í gær en á landsliðsæfingu í dag Íslenski boltinn Ómar Ingi frábær í öruggum sigri Magdeburg Handbolti Dásamar Albert og segir hann ráða hver taki vítin Fótbolti Þekkti þjálfarann og fékk því himnasendingu frá Reyðarfirði Íslenski boltinn Fleiri fréttir Hætti á samfélagsmiðlum og hættir ekki að skora Onana haldið oftast hreinu Ofurvaramaðurinn Duran fær nýjan sex ára samning Næstu vikur gríðarlega mikilvægar fyrir Ten Hag „Bara lygarar og svindlarar sem segja að hann sé vandamálið“ Man United ekki byrjað verr síðan 1989 Hemp í sögubækurnar og Man City á toppinn Ten Hag: Erum allir á sömu blaðsíðu Ótrúleg endurkoma Brighton Forest fékk stig manni færri Markalaust á Villa Park Van Nistelrooy hræddur um að hann verði álitinn hafa stungið Ten Hag í bakið Markaskorarinn Kovačić: „Engir auðveldir leikir í þessari deild“ Óttast að Alisson sé frá næstu vikurnar Pickford bjargaði stigi Meistararnir lentu undir en unnu samt Skytturnar komu til baka gegn Dýrlingunum „Okkur er sama hvað öðrum finnst um okkur“ Liverpool með fjögurra stiga forskot á toppnum Sjáðu fáránleg mistök markvarðar Leeds Ratcliffe um Ten Hag: „Ekki mín ákvörðun“ „Þá er ég mjög heimskur þjálfari“ Samherji Stefáns Teits í átta leikja bann fyrir að bíta mótherja Trúir ekki skýringum og tippar á rifrildi við Rashford Eigandi Nottingham Forest ákærður af enska knattspyrnusambandinu Valinn í landsliðið í fyrsta sinn í sjö ár Holdafarsummæli Guardiola sem myllusteinn um háls Phillips Henry hélt að Saka yrði ekki það góður „Hann er klárlega magnaður þjálfari“ Leikmaður City handtekinn fyrir að stela síma Sjá meira