Viðskipti innlent

Júlíus ráðinn til H:N Markaðssamskipta

Atli Ísleifsson skrifar
Júlíus Valdimarsson.
Júlíus Valdimarsson. H:N Markaðssamskipti
Júlíus Valdimarsson hefur verið ráðinn sem grafískur hönnuður hjá H:N Markaðssamskiptum.

Í tilkynningu frá fyrirtækinu kemur fram að Júlíus sé Kópavogsbúi, hafi gengið í Menntaskólann við Hamrahlíð og lært grafíska hönnun við Listaháskóla Íslands.

„Eftir útskrift fór hann í starfsnám til Heidelberg í Þýskalandi þar sem hann starfaði á hönnunarstofunni gggrafik og lærði undir Götz Gramlich. Þegar námi lauk kom hann aftur til Íslands og hefur starfað sjálfstætt þar til nú.

Júlíus er 26 ára og trúlofaður Oddrúnu Magnúsdóttur, starfsmanni í ferðaþjónustu. Júlíus er kvikmyndaáhugamaður og myndasögunörd en í uppáhaldi hjá honum er japanska teiknimyndaserían Akira,“ segir í tilkynningunni.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×