Viðskipti innlent

253.000 tonn til Íslands

Svavar Hávarðsson skrifar
Vægi uppsjávarfisks er gríðarlegt fyrir íslenskt þjóðarbú.
Vægi uppsjávarfisks er gríðarlegt fyrir íslenskt þjóðarbú. Mynd/Kristín Svanhvít
Gefnar hafa verið út reglugerðir um leyfilega heildarveiði á norsk-íslenskri síld og leyfilega upphafsveiði á kolmunna á árinu 2017.

Leyfilegur heildarafli á norsk-íslenskri síld verður 102.984 tonn. Talan miðast við hlut Íslands í samningi frá 2007 og ráðgjöf Alþjóðahafrannsóknastofnunarinnar (ICES) ásamt 10% aukningu í samræmi við ákvörðun Noregs, sem hefur langstærstan hlut í stofninum, og jók fyrir skömmu einhliða hlut sinn úr 61% í 67% af heildaraflanum.

Upphafsveiði á kolmunna er ákveðin 150.000 tonn en leyfilegur heildarafli verður endanlega ákveðinn þegar fyrir liggja ákvarðanir annarra ríkja um sinn heildarafla. Stjórnvöld munu við þá ákvörðun horfa til þess að hagsmunir Ísland verði ekki fyrir borð bornir.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×