Þessari brú er ætlað að standast stærstu Skaftárhlaup næstu aldir
Hlaupið, sem fyrstu daga októbermánaðar 2015 ruddist niður farvegi Skaftár og Eldvatns, var stærsta Skaftárhlaup sem menn höfðu upplifað og ljóst að eitthvað myndi undan láta. Ógnarkrafur hlaupsins var slíkur að árbakkar Eldvatns molnuðu niður.
Undir brúnni hjá Ásum gróf jökulvatnið um fimmtán metra breiða skák úr austurbakkanum á rúmlega 400 metra löngum kafla. Steypt undirstaða brúarinnar stóð eftir í lausu lofti og fór svo að brúin var úrskurðuð ónýt, en léttum bílum hefur þó verið leyft að aka yfir hana.
En nú er Vegagerðin búin að finna nýtt brúarstæði nokkur hundruð metrum neðar, sem kallar á nýtt vegstæði og nýja vegtengingu við hringveginn í Eldhrauni.
„Við treystum því að þessi nýi staður sé öruggari fyrir brú og komandi flóð því þetta var ekki síðasta flóðið úr Skaftárkötlum sem mun koma niður Eldvatnið,“ segir Hreinn Haraldsson vegamálastjóri í viðtali í fréttum Stöðvar 2.
„Við reynum bæði að setja brúna þar niður og byggja hana með þeim hætti að hún muni standast næstu áratugi, - og næstu aldir vonandi, - viðlíka flóð.“
Nýja brúin verður 78 metra löng stálbogabrú og segir vegamálastjóri að verkið sé fjármagnað að hluta með tryggingarbótum sem fengust fyrir gömlu brúna en þó einkum með framlagi á fjáraukalögum nýliðins ár. Og af teikningum að dæma verður nýja brúin tignarlegt mannvirki.
„Já, hún er falleg. Við reynum náttúrlega að horfa á það svolítið líka, ekki síst á svona svæðum, sem er í fallegu náttúrulegu umhverfi, og sést langt að, að það fari vel í landinu,“ segir vegamálastjóri.
Tengdar fréttir
Slæmar fréttir ef hlaup af þessari stærð verða venjan
Engar skýringar hafa enn fundist á því hvers vegna Skaftárhlaupið nú er það stærsta í sögunni.
Brúin verr farin og mögulega ónýt eftir átök Skaftárhlaups
Bráðabirgðaviðgerð á brúnni yfir Eldvatn hjá Ásum, sem skemmdist í Skaftárhlaupinu, er talin kosta tugi milljóna króna.
Ýtarleg umfjöllun Stöðvar 2: Stefnir í stærsta Skaftárhlaup frá upphafi mælinga
Kristján Már Unnarsson fylgdist með ógnarkrafti Skaftárhlaupsins og tók stöðuna á bændum í nágrenni Skaftár.
„Langstærsta Skaftárhlaup sem menn hafa upplifað“
Kristján Már Unnarsson fréttamaður er á staðnum og fylgist með gangi mála.
Hefja undirbúning að smíði nýrrar brúar yfir Eldvatn
Vegagerðin telur að brúin yfir Eldvatn, sem laskaðist í Skaftárhlaupinu í byrjun mánaðarins, muni ekki standast næsta hlaup.
Brúnni yfir Eldvatn lokað ótímabundið vegna hlaupsins
"Það er farið að fylla undan annarri undirstöðunni,“ segir Sveinn Kristján Rúnarsson, yfirlögregluþjónn á Suðurlandi.
Undirstöðurnar illa farnar undir brúnni
Brúnni yfir Eldvatn hjá Ásum var lokað í dag vegna þess hvað aurflóðið úr Skaftárjökli hefur grafið mikið undan brúnni.