Óþarft að virkja til aukinna orkuskipta Sveinn Arnarsson skrifar 17. janúar 2017 06:00 Hægt er að minnka losun gróðurhúsalofttegunda um 1,5 milljón tonn á ári með orkuskiptum. vísir/gva
Stórátak þarf í enduruppbyggingu flutningakerfis raforku ef orkuskipti í íslensku samfélagi eiga að verða að veruleika. Sverrir Jan Norðfjörð, framkvæmdastjóri þróunar- og tæknisviðs hjá Landsneti, segir kostnaðinn geta hlaupið á um 40 milljörðum til 2030 ef dreifikerfið á að geta flutt raforku skammlaust á milli svæða. Framkvæmdastjóri Orkuseturs telur hægt að orkuskipta öllum bílaflota Íslendinga með þeirri orku sem nú er fyrir hendi.Björt Ólafsdóttir, umhverfisráðherra.vísir/anton brinkSigurður Friðleifsson, framkvæmdastjóri Orkuseturs, segir orkuskipti í samgöngum möguleg án þess að virkja þurfi frekar. „Tíu prósent landsmanna hita hús sín með rafmagni. Það er hægt að fækka þeim með varmadælum. Ef við myndum losa helminginn af því rafmagni sem fer í húshitun gæti það rafmagn dugað á um 116 þúsund rafbíla. Einnig má ná miklum sparnaði í raforku með LED-lýsingu á götum sveitarfélaga. Rafmagnið er til, við þurfum að nýta það betur,“ segir Sigurður Tilgangur samantektarinnar var að kortleggja þær auknu kröfur sem orkuskipti munu gera til raforkuinnviða landsins. „Í skýrslu VSÓ Ráðgjafar og Landsnets um orkuskipti í íslensku samfélagi stillum við upp nokkrum sviðsmyndum um framtíðina, sem innihalda mismikil orkuskipti. Til lengri tíma litið teljum við að hægt sé að draga enn frekar úr losun gróðurhúsalofttegunda um allt að 1,5 milljónir tonna á ári. Til þess þarf þó að stórbæta flutningskerfið en markmið okkar er að geta flutt raforku til allra á sem hagkvæmastan hátt," segir Sverrir Jan. Í skýrslu Landsnets er dregið fram að ef eigi að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda með orkuskiptum upp á 1,5 milljónir tonna á ári þurfi um 880 MW af rafmagni til þess. Tvær líklegri sviðsmyndir snúa að því að minnka losun um 340 þúsund tonn á ári en Alþingi samþykkti á síðasta ári aðgerðaáætlun um raforkuskipti. Markmið áætlunarinnar er að fimmfalda hlutfall endurnýjanlegrar orku í samgöngum á landi og hundraðfalda hlutfallið fyrir haftengda starfsemi. Björt Ólafsdóttir, nýr umhverfis- og auðlindaráðherra, segir mikilvægt að áætlunin gangi eftir. „Við eigum að vera leiðandi á heimsvísu og sýna öðrum þjóðum hvernig þetta er gert. Það er rétt hjá Landsneti að við verðum að efla flutningskerfið til að þetta megi verða. Við ættum að einhenda okkur í það verk. Hins vegar þurfum við að gera það rétt og vel með umhverfissjónarmið að leiðarljósi,“ segir Björt.Fréttin birtist fyrst í Fréttablaðinu.
Birtist í Fréttablaðinu Mest lesið Erlendur ferðamaður fannst látinn við Stuðlagil Innlent Ökumaðurinn liðlega tvítugur Innlent Báðu um paramynd og augnabliki síðar var veskið horfið Innlent Öllum sundlaugum í Reykjavík lokað Innlent Sagðist nýlega hafa rætt við löngu látna konu sína Innlent Hlaut lífshættulega áverka vegna stunguárásar Innlent Enn eitt barnið sem dettur ofan í holu Innlent Sigríður Hrönn Elíasdóttir er látin Innlent Réðst á fyrrverandi kærustur og aðstoðarslökkviliðsstjóra Innlent Mikið um dýrðir í Íslandsboðinu í konungshöllinni Innlent Fleiri fréttir Kvíðin í aðdraganda hamfara og spenna í þingheimi Hagstofan biðst velvirðingar og tekur talnaefnið úr birtingu The Guardian fjallar um túrismann sem gleypi íslenska tónleikastaði Erlendur ferðamaður fannst látinn við Stuðlagil Öllum sundlaugum í Reykjavík lokað Hlaut lífshættulega áverka vegna stunguárásar Árekstur á Eyrarbakkavegi Ríkisstarfsmenn ofmetnir um fimm þúsund Báðu um paramynd og augnabliki síðar var veskið horfið Bilun gæti valdið heitavatnsleysi víðar Hæstánægð með Höllu „Við sjáum afleiðingar þess að vinna ekki fyrir ofan fossinn“ Telur að Óli Björn líti svo á að VG hafi kastað stríðshanskanum Stjórnarsamstarfi efnislega lokið? Vongóð um að Ísland fái sæti í mannréttindaráðinu Ökumaðurinn liðlega tvítugur Réðst á fyrrverandi kærustur og aðstoðarslökkviliðsstjóra Telja óstaðbundin störf of kostnaðarsöm Kom skemmtilega á óvart að hitta Margréti Danadrottningu Ríkisstjórnin á valdi „minnsta og veikasta“ flokksins Nú má keyra á nagladekkjum í borginni Sigríður Hrönn Elíasdóttir er látin Enn eitt barnið sem dettur ofan í holu Heitavatnslaust víða í Vesturbænum Sagðist nýlega hafa rætt við löngu látna konu sína Lyfin hjálpi fólki í vandræðum en leysi ekki vandann Mikill viðbúnaður vegna hnífaárásar í nótt Mikið um dýrðir í Íslandsboðinu í konungshöllinni Margir í vandræðum í Kömbunum Greiða atkvæði um verkfall í níu skólum fram á fimmtudag Sjá meira