Innlent

Til­kynnt um heimilis­of­beldi í Hafnar­firði

Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar
Frá Hafnarfirði.
Frá Hafnarfirði. Vísir/GVA
Tilkynnt var um heimilisofbeldi á heimili í Hafnarfirði rétt fyrir klukkan 13 í dag en málið er til rannsóknar hjá lögreglu.

Þá var á fjórða tímanum tilkynnt um tvo þjófnaði, annars vegar úr raftækjaverslun í Vesturbæ og hins vegar úr byggingavöruverslun á svæði lögreglustöðvar 4 sem nær til Grafarvogs, Mosfellsbæjar og Árbæjar en talið er að þjófnaðurinn hafi átt sér stað í nótt.

Um ellefuleytið var svo tilkynnt um að fólk væri að neyta fíkniefna í kyrrstæðri bifreið í miðbæ Reykjavíkur. Lögreglan ræddi við fólkið og við leit fundust fíkniefni á einum manni.

Bifreið var svo stöðvuð á Vesturlandsvegi eftir hádegi í dag en ökumaðurinn er grunaður um að vera undir áhrifum fíkniefna.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×