Innlent

Kvöldfréttir Stöðvar 2: Rætt við Margréti Danadrottningu

Guðni Th. Jóhannesson forseti Íslands og Eliza Reid eiginkona hans fara í sína fyrstu opinberu heimsókn til útlanda til Danmerkur dagana 24. til 26. janúar. Í fréttum Stöðvar tvö í kvöld verður birt viðtal Heimis Más Péturssonar fréttamanns við Margréti Þórhildi Danadrottningu í vikunni. Þar greinir hún meðal annars frá kynnum sínum af fyrri forsetum Íslands, áhuga hennar á fornleifafræði og listsköpun og fleira.

Viðtalið verður sýnt strax að loknum íþróttafréttum í fréttum Stöðvar 2 í kvöld, en hér má sjá lítinn hluta þess.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×