Skrifuðum geisladiskum stolið frá Andreu Jónsdóttur Benedikt Bóas Hinriksson skrifar 13. janúar 2017 07:00 Andrea Jónsdóttir saknar bakpokans síns þar sem verk hennar liggja. Mynd/Aðsend
Bakpoki með nokkur hundruð skrifuðum geisladiskum, í eigu rokkömmu Íslands, Andreu Jónsdóttur, hvarf af skemmtistaðnum Dillon snemma á nýja árinu og syrgir Andrea pokann mjög. Í pokanum voru fjórar geisladiskamöppur með þúsundum laga sem Andrea hefur verið dugleg að nota við að þeyta skífum og var pokinn langt frá því að vera léttur og meðfærilegur. „Þetta er ekki fjárhagslegt tjón en tilfinningalegt og er alveg rosaleg óþægindi,“ segir Andrea en hún deildi upplifun sinni á Facebook og vonar að máttur samfélagsmiðilsins verði til þess að pokanum verði skilað aftur á réttan stað. „Ég er svo gamaldags að ég skrifa mína diska sjálf. Sit bara heima og tek bestu lögin frá hljómsveitum og set á einn disk. Mesti skaðinn er að ein mappa er með safndiskum frá alls konar tímabilum og tónlistarstefnum. Ég get nefnilega spilað víðar en á Dillon,“ segir hún og hlær. Andrea er ein reyndasta útvarpskona landsins og hefur spilað tónlist um árabil um helgar á Dillon. Í pokanum eru þrjár stórar möppur, ein hvít, önnur gul og sú þriðja rauð, en allar eru af sömu tegund. Sú fjórða er minni, svört og þykk. „Ég var að vona að einhver myndi skila þessu fljótlega en það hefur ekki gerst, því miður. Þetta eru ekki verðmæti fyrir neinn nema mig, nema viðkomandi ætli að fara þeyta skífum með geisladiskum. Ég vona bara að diskunum hafi ekki verið fleygt og trúi að ég fái þá aftur,“ segir Andrea. Fréttin birtist fyrst í Fréttablaðinu
Birtist í Fréttablaðinu Mest lesið Erlendur ferðamaður fannst látinn við Stuðlagil Innlent Ökumaðurinn liðlega tvítugur Innlent Öllum sundlaugum á höfuðborgarsvæðinu lokað Innlent Bein útsending: „Óveður aldarinnar“ nálgast Flórída Erlent Gætu ekki flúið þótt þau vildu Erlent Báðu um paramynd og augnabliki síðar var veskið horfið Innlent Sagðist nýlega hafa rætt við löngu látna konu sína Innlent Hlaut lífshættulega áverka vegna stunguárásar Innlent Enn eitt barnið sem dettur ofan í holu Innlent Sigríður Hrönn Elíasdóttir er látin Innlent Fleiri fréttir Heimilislæknar upplifi stundum pressu á að skrifa lyfin út Stefna á að opna sundlaugar í Reykjavík í fyrramálið Ísland í mannréttindaráð Sameinuðu þjóðanna Vísa á bug kenningu um að stjórnarsamstarfið tóri á styrkveitingum Undraverður bati með háþrýstimeðferð Þurfa ekki að greiða vegna viðskiptavina sem borguðu ekki fyrir bílastæði Kvíðin í aðdraganda hamfara og spenna í þingheimi Hagstofan biðst velvirðingar og tekur talnaefnið úr birtingu The Guardian fjallar um túrismann sem gleypi íslenska tónleikastaði Erlendur ferðamaður fannst látinn við Stuðlagil Öllum sundlaugum á höfuðborgarsvæðinu lokað Hlaut lífshættulega áverka vegna stunguárásar Árekstur á Eyrarbakkavegi Ríkisstarfsmenn ofmetnir um fimm þúsund Báðu um paramynd og augnabliki síðar var veskið horfið Bilun gæti valdið heitavatnsleysi víðar Hæstánægð með Höllu „Við sjáum afleiðingar þess að vinna ekki fyrir ofan fossinn“ Telur að Óli Björn líti svo á að VG hafi kastað stríðshanskanum Stjórnarsamstarfi efnislega lokið? Vongóð um að Ísland fái sæti í mannréttindaráðinu Ökumaðurinn liðlega tvítugur Réðst á fyrrverandi kærustur og aðstoðarslökkviliðsstjóra Telja óstaðbundin störf of kostnaðarsöm Kom skemmtilega á óvart að hitta Margréti Danadrottningu Ríkisstjórnin á valdi „minnsta og veikasta“ flokksins Nú má keyra á nagladekkjum í borginni Sigríður Hrönn Elíasdóttir er látin Enn eitt barnið sem dettur ofan í holu Heitavatnslaust víða í Vesturbænum Sjá meira