Innlent

Brotist inn í tölvufyrirtæki

sunna karen sigurþórsdóttir skrifar
Þrír menn hafa verið handteknir í tengslum við innbrotið í austurborginni.
Þrír menn hafa verið handteknir í tengslum við innbrotið í austurborginni. Vísir/Hari
Brotist var inn í tölvufyrirtæki í austurborginni laust eftir klukkan fjögur í nótt. Þrír karlmenn voru handteknir í tengslum við innbrotið en þeir eru grunaðir um að hafa haft á brott með sér eitthvað þýfi, en í skeyti frá lögreglu segir að ekki sé vitað á þessari stundu hvað var tekið.

Mennirnir voru vistaðir í fangageymslu og verða yfirheyrðir síðar í dag.

Þá barst lögreglu tilkynning um innbrot og þjófnað í heimahús í Árbæ klukkan rúmlega 23 í gærkvöldi. Ekki er vitað hvað var tekið og þjófarnir eru ófundnir.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×