Innlent

Enginn slasaðist alvarlega í slysinu á Biskupstungnabraut

sunna karen sigurþórsdóttir skrifar
Slysið varð á Biskupstungnabraut við afleggjarann að Búrfellsvegi um klukkan hálf þrjú í dag.
Slysið varð á Biskupstungnabraut við afleggjarann að Búrfellsvegi um klukkan hálf þrjú í dag. loftmyndir.is
Tveir hlutu smávægileg beinbrot eftir umferðarslys á Biskupstungnabraut í dag. Alls lentu sjö í slysinu en enginn þeirra er alvarlega slaður. Einum þeirra verður hins vegar haldið á sjúkrahúsi í nótt af öryggisástæðum. RÚV greinir frá.

Slysið varð á Biskupstungnabraut við afleggjarann að Búrfellsvegi um klukkan hálf þrjú í dag þegar tveir jeppar skullu saman. Lokað var fyrir umferð um veginn um tíma.

Mikil hálka var á veginum þegar slysið varð og samkvæmt RÚV náði ökumaður eins bíls til viðbótar að forða sér frá árekstri með því að aka út af.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×