Innlent

Skoða möguleikann á snjóflóðavakt

Jóhann K. Jóhannsson skrifar
Frá aðgerðum á Esjunni í gær.
Frá aðgerðum á Esjunni í gær. vísir/ernir
Göngumaðurinn sem leitað var að eftir að snjóflóð féll í Esjunni síðdegis í gær fannst látinn. Aðstæður til björgunarstarfa þóttu mjög erfiðar. Sérfræðingur hjá Veðurstofu Íslands segir mögulegt að snjóflóðavakt verði sett á Esjuna eftir slysið í gær.

Mikill fjöldi viðbragðsaðila tóku þátt í björgunaraðgerðum í Esjunni í gær en tilkynning barst til Neyðarlínunnar laust fyrir klukkan fimm um að þrír göngumenn hafi lent í snjóflóði og eins væri saknað.

Flóðið féll í Grafardal neðan við Hátind í um sex hundruð metra hæð en svæðið sem mennirnir voru á, er á þekktri gönguleið, en þó ekki í alfaraleið.

Fjallabjörgunarteymi Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins auk björgunarsveitarmanna komu fyrstir að mönnunum tveimur sem komust sjálfir úr flóðinu. Varðstjóri slökkviliðsins lýsti aðstæðum á vettvangi svona:

„Þær voru mjög slæmar og eftir því sem farið var hærra upp þá bara versnaði mjög mjög mikið. Það var harðfenni. Það var snjóflóðahætta og mikill vindur, þannig að þetta voru mjög erfiðar aðstæður þarna uppi,“ sagði Oddur Hallgrímsson, varðstjóri hjá slökkviliði höfuðborgarsvæðisins.

Þyrla Landhelgisgæslunnar tók þátt í aðgerðunum í gær auk á annað hundrað björgunarmanna og leitarhunda.

Mennirnir tveir sem komust úr flóðinu voru fluttir á slysadeild til aðhlynningar en þriðji maðurinn sem leitað var að fannst látinn um klukkan sjö.

Mörg snjóflóð hafa fallið í Esjunni á liðnum árum en ekki er þó unnin sérstök snjóflóðaspá fyrir fjallið af Veðurstofu Íslands. Snjóflóðasérfræðingar skoðuðu aðstæður í dag.

Snjóflóðasérfræðingar Veðurstofunnar sögðu í dag að veðurfar undanfarna daga í Esjunni hafi verið þannig að nýr snjór sem fallið hefur, hefur bundist illa við þann snjó sem fyrir er sem eykur hættuna á snjóflóðum.

„Esjan er hátt  fjall og bratt víða þannig að það falla snjóflóð víða þannig að það falla snjóflóð í Esjunni flesta vetur og mörg reyndar á hverjum vetri. Þessi flóð sem hafa fallið núna eru á tiltölulega algengri gönguleið en þau eru nokkuð fjarri aðalgönguleiðinni sem flestir fara frá bílastæðinu við Kollafjörð,“ sagði Tómas Jóhannesson, jarðeðlisfræðingur hjá Veðurstofu Íslands.

Snjóflóðaspár eru gerðar fyrir Tröllaskaga, norðanverða Vestfirði og Austfirði allan veturinn.

„Við höfum ekki enn þá tekið þá ákvörðun um að það sé ástæða til þess að setja á snjóflóðaspá fyrir suðvesturhornið en það verður kannski gert í framhaldi af þessu,“ sagði Auður Kjartansdóttir, ofanflóðasérfræðingur hjá Veðurstofu Íslands.​


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×