Innlent

Tilkynnt um efnaleka um borð í Lagarfossi

nína hjördís þorkelsdóttir skrifar
Lagarfoss.
Lagarfoss. Vísir/Daníel
Tilkynnt var um efnaleka í gámi um borð í Lagarfossi laust eftir hádegi í dag. Skipið var á siglingu þegar tilkynningin barst og lagðist það við bryggju í Sundahöfn klukkan 14:30. Eiturefnakafari er á svæðinu og allur búnaður slökkviliðs tiltækur.

Samkvæmt upplýsingum frá slökkviliðinu er um basísk ætandi efni að ræða. Ekki er enn komið í ljós hvort leki hafi orðið en talsverðan tíma tók að komast að gámnum, hífa hann og opna.

Efnin sem gámurinn inniheldur eru ekki hættulegt umhverfinu en  þau geta verið skaðleg fólki.

Samkvæmt upplýsingum frá slökkviliðinu er hugsanlegur leki aðeins bundinn við einn gám og því ekki hætta á eignatjóni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×