Innlent

Ógnaði starfsmanni Landspítalans með sprautunál

Oddur Ævar Gunnarsson skrifar
Maðurinn heimtaði lyf.
Maðurinn heimtaði lyf. Vísir/Pjetur
Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu barst tilkynning rétt fyrir klukkan átta í morgun, um karlmann sem kominn var inn á deild Landspítalans við Hringbraut. Þetta kemur fram í dagbók lögreglu.

Þar ógnaði maðurinn starfsmanni með sprautunál og heimtaði lyf auk þess sem hann sló öryggisvörð í andlitið.

Lögreglunni hafði skömmu áður borist tilkynning um sama mann, en þar hafði hann verið að stela mat í verslun skammt frá. Maðurinn er góðkunningi lögreglunnar en hann var handtekinn á vettvangi og verður  yfirheyrður síðar í dag.

Rétt fyrir klukkan ellefu í morgun barst lögreglunni svo önnur tilkynning frá Landspítalanum. Sjúklingur á slysadeild í Fossvogi hafði brotið spegil og ógnað starfsmönnum með brotinu auk þess sem hann sló öryggisvörð. Maðurinn var vistaður í fangaklefa.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×