Innlent

Minntust Birnu með mínútu þögn

sunna karen sigurþórsdóttir skrifar
vísir/jóhann k.
Mínútu þögn var á Arnarhóli í miðborg Reykjavíkur nú síðdegis til minningar um Birnu Brjánsdóttur, sem fannst látin á sunnudag eftir rúmlega viku leit. Kveikt var á kertum og lögð voru blóm við Laugaveg 31 þar sem Birna sást síðast, sem og á Arnarhóli.

Karlakórinn Esja söng lagið Ísland ögrum skorið að lokinni mínútu þögn, Heyr himna smið og Smávinir fagrir, svo fátt eitt sé nefnt.

Hér fyrir neðan má sjá myndskeið og myndir frá athöfninni.

vísir/ernir
vísir/ólöf
vísir/ernir
vísir/ernir

Tengdar fréttir

Óraunverulegt að kveðja Birnu

Þrátt fyrir að þjóðin hafi tekið hvarf og andlát Birnu Brjánsdóttur sérstaklega nærri sér í liðinni viku þá er upplifunin mjög ólík því sem hennar nánustu upplifa. Bestu vinkonur Birnu, þær María og Matthildur, segjast vilja minnast hennar fyrir lífsglöðu og afslöppuðu stelpunnar sem hún var en ekki þess sem síðar kom fyrir hana. Í dag verður gengið niður Laugaveginn til minningar um Birnu og blóm lögð að Laugavegi 31, þaðan sem hún hvarf.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×