Innlent

Slagsmál í bakaríi við Bíldshöfða

sunna karen sigurþórsdóttir skrifar
Slagsmál brutust út í Bakarameistaranum í Húsgagnahöllinni við Bíldshöfða.
Slagsmál brutust út í Bakarameistaranum í Húsgagnahöllinni við Bíldshöfða. vísir/vilhelm
Til átaka kom í Bakarameistaranum við Bíldshöfða á fjórða tímanum í dag. Mikill fjöldi lögreglumanna var sendur á staðinn til þess að leysa úr málunum, en ekki hafa fengist upplýsingar um hvort einhver hafi verið handtekinn, eða hvort einhvern hafi sakað.

RÚV greindi fyrst frá en þar segir að tveir menn hafi slegist innan um viðskiptavini og að börn hafi verið á staðnum.

Lögregla vildi ekki tjá sig frekar um málið þegar eftir því var leitað.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×