Innlent

Fór í göngutúr með hundinn og fann mikið magn af kannabisefnum

sunna karen sigurþórsdóttir skrifar
Efnin fundust í tveimur stórum pokum, að sögn lögreglu.
Efnin fundust í tveimur stórum pokum, að sögn lögreglu. Vísir/GVA
Karlmaður sem var úti að ganga með hund sinn á Suðurnesjum gekk fram á mikið magn af kannabisefnum á dögunum. Efnin voru í tveimur stórum svokölluðum zip lock pokum og gerði maðurinn lögreglu strax viðvart.

Þá fann annar maður í vikunni lítinn poka með kannabisefnum utandyra og afhenti hann þau lögreglunni á Suðurnesjum, að því er fram kemur í tilkynningu frá lögreglunni.

Í tilkynningunni segir jafnframt að gerð hafi verið upptæk amfetamín og kannabisefni í tveimur húsleitum í vikunni. Í þriðju húsleitinni hafi fundist lítilræði af kannabisefnum, sem einnig hafi verið gerð upptæk.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×