Málmbræðsla þarf fjármagn og skuldar raforkureikninga Haraldur Guðmundsson skrifar 27. janúar 2017 07:00 GMR hóf framleiðslu á Grundartanga árið 2013 vísir/gva „
Það ríkir áfram óvissa um reksturinn. Það er ekki lengur rafmagnslaust en það er ekki búið að ganga frá málum hjá RARIK,“ segir Daði Jóhannesson, framkvæmdastjóri GMR Endurvinnslu, aðspurður hvort framleiðsla í málmbræðslu fyrirtækisins á Grundartanga sé hafin á ný. RARIK lokaði fyrir rafmagn til fyrirtækisins í byrjun janúar vegna vangoldinna raforkureikninga og í frétt Bylgjunnar kom fram að óvissa ríkti um áframhaldandi rekstur. Daði segir í samtali við Fréttablaðið að eigendur fyrirtækisins leiti nú að nýjum fjárfestum, bæði hér heima og erlendis, sem séu tilbúnir að leggja GMR til aukið hlutafé. Aðspurður hversu mikil fjárþörfin er vill Daði ekki svara því en fyrirtækið endurvinnur stál sem fellur til hér á landi. „Þetta fyrirtæki var stofnað fyrir fjórum árum og það er búinn að vera erfiður og langur uppbyggingarfasi. Erfiðari og lengri en menn ætluðu sér og það er margt sem spilar þar inn í. Heimsmarkaðsverð á stáli er þar langstærsti þátturinn,“ segir Daði. Umhverfisstofnun hefur ítrekað gert athugasemdir við starfsemi málmendurvinnslunnar og skráð á yfir þriðja tug frávika frá starfsleyfi. Fyrirtækið sætir auknu eftirliti vegna ítrekaðra vanefnda við að koma mengunarvörnum í viðunandi horf. Eftirlitsskoðun stofnunarinnar í fyrirtækinu í ágúst í fyrra leiddi meðal annars í ljós að framleiðsluúrgangur var ekki varinn fyrir regni og því ekki hægt að hindra að mengunarefni bærust í jarðveg og fráveituvatn. Þegar starfsmenn Umhverfisstofnunar fóru í aðra eftirlitsskoðun í nóvember hafði úrbótum vegna eldri útistandandi frávika seinkað og nýjar athugasemdir skráðar niður. Framleiðslunni fylgir talsvert magn úrgangsefnanna síuryks og gjalls sem innihalda þungmálma og GMR ætlaði við opnun verksmiðjunnar að endurvinna. Það hefur nú óskað eftir að fá að losa úrganginn í flæðigryfju á Grundartanga og úrskurðaði Skipulagsstofnun í desember að breytingin sé háð umhverfismati. „Staðan er óbreytt frá þessum heimsóknum. Það eru klárlega enn mál sem þarf að ganga frá en ég vil helst ekki fara út í það núna,“ segir Daði Jóhannesson. Eyþór Arnalds, fjárfestir og fyrrverandi oddviti Sjálfstæðismanna í Árborg, var í eigendahópi fyrirtækisins í árslok 2014 og stjórnarformaður þess þangað til í apríl í fyrra. Eyþór segir í samtali við Fréttablaðið að hann eigi í dag einungis lítinn hlut í fyrirtækinu.. Uppfærðum hluthafalista GMR hefur ekki verið skilað inn til fyrirtækjaskrár ríkisskattstjóra. Fréttin birtist fyrst í Fréttablaðinu
Birtist í Fréttablaðinu Mest lesið Flytur fyrirtækin vegna löggjafar um trans börn Viðskipti erlent Áföstu tapparnir stóðust ekki gæðapróf Neytendur „Sérkennileg“ hækkun íbúðaverðs á tímum hárra vaxta Viðskipti innlent Leiguverð heldur áfram að hækka Viðskipti innlent Taylor Swift talin valda verðbólgu í Bretlandi Viðskipti erlent „Það er verið að ríkisvæða húsnæðismarkaðinn“ Viðskipti innlent Umferðarofsi stofnar vegfarendum í hættu Samstarf Leggja upp laupana í Lundúnum Viðskipti innlent Níu holu golfvöllur á gamalli landnámsjörð Samstarf Fasteignakaup fjárfesta vísbending um að fasteignaverð haldi áfram að hækka Viðskipti innlent Fleiri fréttir „Sérkennileg“ hækkun íbúðaverðs á tímum hárra vaxta Leiguverð heldur áfram að hækka „Það er verið að ríkisvæða húsnæðismarkaðinn“ Leggja upp laupana í Lundúnum Annað tilboð borist í Skagann 3X Fasteignakaup fjárfesta vísbending um að fasteignaverð haldi áfram að hækka Skúli í Subway reisir glæsihótel við Jökulsárlón Búið að bjóða í Skagann 3X Brutu samkeppnislög með ótímabærri markaðssetningu Harpa vill létta lund veðurbugaðra höfuðborgarbúa Atlanta með 600 manna flugútgerð í Sádí-Arabíu Berglind gengin í eigendahópinn Staðan ekki jafnsvört og sumir vilji meina Bjartmar ráðinn aðstoðarframkvæmdastjóri Íbúar Grafarholts geta tekið til matar síns á ný „Við erum bara að reyna að lifa af“ „Komin upp í þak“ í verðlagningu Nýir eigendur taka við Melabúðinni Festi festi kaup á Lyfju Spá aukinni verðbólgu HS Orka tryggir sér fjörutíu milljarða króna Mikil fjölgun tengifarþega en mun færri ferðast til Íslands Fleiri farþegar en minni sætanýting Mikill áhugi á þrotabúi Skagans 3X Formaður atvinnuveganefndar á hlut í félaginu sem KS keypti Landsbankinn til ráðgjafar vegna sölu Íslandsbanka KS hafi fest kaup á Kjarnafæði Norðlenska Sáraroðið frá Ísafirði notað til bjargar brenndum börnum í Afganistan Brúneggjamálið tekið fyrir í Hæstarétti Úr boltanum í tryggingarnar Sjá meira