Innlent

Sviptur 215 nautgripum vegna aðbúnaðar og umhirðu

Sunna Karen Sigurþórsdóttir skrifar
Bóndi á Norðurlandi hefur verið sviptur nautgripum sínum vegna óviðunandi aðbúnaðar og umhirðu. Matvælastofnun hefur lagt hald á 215 nautgripi en þar af voru 45 fluttir í sláturhús og 170 verða í vörslu stofnunarinnar á bænum. Um endurtekin brot er að ræða og þrátt fyrir dagsektir á ábúendur var ekki gripið til úrbóta.

Matvælastofnun hefur haft afskipti af býlinu undanfarin misseri vegna ófullnægjandi aðbúnaðar og umhirðu nautgripanna, að því er segir í tilkynningu frá stofnuninni. Þeim hafi ekki verið tryggður fullnægjandi aðgangur að drykkjarhæfu vatni og fóðri spillt með ágangi og óhreinindum í fóðurgangi.

Þá hafi þéttleiki í smákálfastíum verið of mikill og laus naut haldin utan um bundnar kýr. Eigin eftirliti hafi verið ábótavant og meðal annars hafi slösuðum gripum ekki verið sinnt með fullnægjandi hætti eða leitað lækninga. Í tilkynningunni segir að aflífa hafi þurft gripi af þessum sökum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×