Innlent

Bjarni: "Stjórnarandstaðan gaf frá sér formennsku í þremur nefndum“

Oddur Ævar Gunnarsson skrifar
Bjarni Benediktsson forsætisráðherra.
Bjarni Benediktsson forsætisráðherra. vísir/ernir
Bjarni Benediktsson, forsætisráðherra, segir að stjórnarandstaðan hafi gefið frá sér formennsku í þremur nefndum Alþingis, einfaldlega vegna þess að hún hafi ekki getað komið sér saman um hvað ætti að falla í hlut hvers. Þetta kemur fram á Facebook síðu Bjarna.

Sjá einnig: Nefndarformennskur allar í skaut stjórnarflokkanna

Áður hafði Svandís Svavarsdóttir, þingflokksformaður Vinstri-grænna gagnrýnt stjórnarflokkanna harðlega en hún sagði þá hafa boðið formennsku í nefndunum til ákveðinna einstaklinga, en ekki flokka.

Bjarni segir að gengið hafi verið út frá því að stjórnarandstaðan myndi stýra tveimur nefndum, þeim sömu og stjórnarandstaðan stýrði á síðasta kjörtímabili, það er stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd og velferðarnefnd.

Bjarni bendir á að stjórnarandstaðan hafi viljað ná samkomulagi um þriðju nefndina sem og fyrstu varaformennsku í nefndum. Að sögn Bjarna lá fyrir að nefndunum tveimur yrði stýrt af tveimur stærstu flokkunum í stjórnarandstöðunni, Vinstri-grænum og Pírötum og ef samið yrði um þriðju formennsku stjórnarandstöðuflokks, yrði það til að tyrggja að Framsóknarflokkurinn færi fyrir einni nefnd sem þriðji stærsti flokkurinn.

Samkvæmt Bjarna þróuðust samtöl þannig að Framsóknarflokkurinn sóttist eftir formennsku í efnahags- og viðskiptanefnd og var það samþykkt af hálfu stjórnarflokkanna.

Í færslu sinni segir Bjarni að þessu hafi hins vegar verið snúið á haus með því að láta líta út fyrir að stjórnarflokkarnir hafi viljað hafa áhrif á val stjórnarandstöðunnar með því að fallast á bón Framsóknarflokksins um foyrstu í efnahags- og viðskiptanefnd.

„Það væri nær að skrifa frétt um að stjórnarandstaðan hafi gefið frá sér formennsku í þremur nefndum því hún gat ekki komið sér saman um hvað ætti að falla í hvers hlut. Getur verið að Píratar hafi ekki getað unnt Framsóknarflokknum þess að leiða mikilvæga nefnd og hafi frekar viljað kasta öllu frá sér til að koma þeirri sögu á kreik að stjórnin hafi ekkert boðið?“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×