Hæstiréttur féllst ekki á ýtrustu kröfur lögreglu um gæsluvarðhald yfir mönnunum tveimur og dæmdi mennina til tveggja vikna gæsluvarðhalds. Gæsluvarðhaldið afplána mennirnir í einangrun og fá í henni útivist einu sinni á dag í einrúmi.
Heimildir Fréttablaðsins herma að fangelsisyfirvöld hafi áhyggjur af því hvað gerist þegar einangrun mannanna ljúki. Stemningin innan fangelsisins bendi til þess að ekki verði hægt að vista mennina á meðal annarra afplánunarfanga því nokkurrar reiði gæti á meðal íslenskra fanga. Þeir hafi fylgst vel með fréttum undanfarið og ljóst sé að öryggi grænlensku fanganna sé stefnt í voða.

„Útlendingar sem afplána að fullu á Íslandi eiga möguleika á reynslulausn eftir að hafa afplánað helming dómsins ef ákvörðun um brottvísun þeirra liggur fyrir,“ segir Páll Winkel fangelsismálastjóri.
Upplýsingar Fréttablaðsins úr röðum lögreglunnar segja að ákvörðun Hæstaréttar um tveggja vikna gæsluvarðhald, í stað fjögurra, sé eflaust byggð á því hversu íþyngjandi einangrunarvist er. Undir þetta tekur Páll, „Menn taka þessu mjög misjafnlega. Það sem menn eiga þó sameiginlegt er að vera mjög langt niðri [á meðan á einangrun stendur]. Við þurfum bara að passa upp á grunnþarfir.“