Enski boltinn

Gerrard aftur til Liverpool

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Gerrard er mættur aftur til Liverpool.
Gerrard er mættur aftur til Liverpool. vísir/getty
Steven Gerrard, fyrrverandi fyrirliði Liverpool, hefur verið ráðinn unglingaþjálfari hjá félaginu sem hann ólst upp hjá og lék með nánast allan sinn feril.

Gerrard, sem er 36 ára, lagði skóna á hilluna í nóvember á síðasta ári eftir skamma viðkomu hjá Los Angeles Galaxy í Bandaríkjunum.

Gerrard hefur störf í Liverpool-akademíunni í næsta mánuði. Hann mun sinna ýmsum verkefnum í akademíunni og hjálpa efnilegustu leikmönnum félagsins að bæta sig.

Gerrard lék 710 leiki fyrir Liverpool á árunum 1998-2015 og skoraði 186 mörk.

Gerrard varð tvívegis enskur bikarmeistari með Liverpool, þrisvar sinnum deildarbikarmeistari auk þess sem hann vann Meistaradeild Evrópu 2005 og UEFA bikarinn 2001.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×