Innlent

Ársverk sjálfboðaliða í að vinna gegn lúpínum

Sveinn Arnarsson skrifar
Birki og víðir vaxa upp úr lúpínubreiðum eftir því sem jarðvegurinn batnar
Birki og víðir vaxa upp úr lúpínubreiðum eftir því sem jarðvegurinn batnar vísir/gva
Allt að 270 vinnudögum sjálfboðaliða Umhverfisstofnunar var varið í fyrra til þess að fjarlægja lúpínu.

„Þetta kann að hljóma sem há tala en oft eru um tíu manns í einu sem vinna að því að fjarlægja lúpínu eins og í Skaftafelli (Vatnajökulsþjóðgarði) og því eru vinnudagarnir fljótir að safnast saman,“ segir í svari Umhverfisstofnunar við fyrirspurn Fréttablaðsins.

Pétur Halldórsson, upplýsingafulttrúi Skógræktar ríkisins.
Lúpína er að líkindum umdeildasta planta í íslenskri plöntuflóru en miklum tíma er varið í það árlega að hefta útbreiðslu hennar eða fjarlægja úr íslensku landslagi.

Umhverfisstofnun hafði á að skipa 104 sjálfboðaliðum í fyrra sem unnu samtals í 1.756 daga. Allt að fimmtán prósent þessa daga fóru í að útrýma lúpínu af svæðum þar sem lúpína er talin ekki eiga heima. 

„Samkvæmt reglugerð er öll ræktun útlendra tegunda óheimil á friðlýstum svæðum, landslagsgerðum er njóta sérstakrar verndar og alls staðar ofan 500 metra hæðar yfir sjó,“ segir í svari Umhverfisstofnunar.

„Mörg friðlýst svæði njóta einnig verndar vegna sérstæðs landslags eða gróðurfars og því kann dreifing framandi ágengra planta að hafa áhrif á verndargildi viðkomandi svæða. Af þeim sökum hefur Umhverfisstofnun, sem umsjónaraðili friðlýstra svæða, séð um að fjarlægja lúpínu.“

Pétur Halldórsson, upplýsingafulltrúi Skógræktar ríkisins, segir þetta skjóta skökku við á tímum loftslagsbreytinga og hægt væri að nýta sjálfboðaliða til að safna birkifræjum til að breiða út birkiskóga inni í lúpínubreiðum.

„Lúpína bætir næringarástand jarðvegs og því er upplagt að rækta íslenskt birki í lúpínubreiðum og nýta þannig þjónustu hennar. Á tímum loftslagsbreytinga er mikilvægt að efla gróðurþekju landsins. Almennur stuðningur er við það meðal landsmanna að breiða birkiskógana út á ný. Þörf er á vinnandi höndum til að safna fræi af birki, dreifa fræi og gróðursetja birkiplöntur.“ 

Fréttin birtist fyrst í Fréttablaðinu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×