Menning

Klisjukenndur happaendir að mati Jóns Viðars: „Svona efni fær bara einn séns“

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Ófærð, Óþelló og nú Fangar eru á meðal íslenskrar framleiðslu sem hefur fengið að kenna á gagnrýni Jóns Viðars sem syndir oftar en ekki á móti straumnum.
Ófærð, Óþelló og nú Fangar eru á meðal íslenskrar framleiðslu sem hefur fengið að kenna á gagnrýni Jóns Viðars sem syndir oftar en ekki á móti straumnum. Vísir/E.Ól.
Jón Viðar Jónsson gagnrýnandi varð fyrir verulegum vonbrigðum með lokaþátt Fanga sem sýndur var í gærkvöldi. Jón Viðar horfði greinilega á alla sex þættina hugfanginn fram á síðustu sekúndu, fram að klisjukendum happaendi eins og hann kemst sjálfur að orði.

Rétt er að vara þá lesendur við sem hafa ekki séð lokaþáttinn af Föngum að lesa ekki lengra en hingað.

„„Hún opnar skúffu - hundabyssuhvellur/ Morð - og tjaldið fellur.“ Þannig endar skopljóðið Leiksýning eftir Davíð Stefánsson. Háð auðvitað um melódramatíska leiklist,“ segir Jón Viðar sem er vel þekktur fyrir að tala tæpitungulaust þegar kemur að íslenskri framleiðslu hvort sem er í bókum, leikhúsi eða sjónvarpsskjánum.

„Og því miður: það fór þá svo að Fangarnir sem, héldu okkur föngnum allt fram á síðasta þátt, enduðu í melódramatískum klisjum og happaendi af ódýrari sortinni. Veruleg vonbrigði.“

Jón Viðar segist einfaldlega missa áhugann þegar svona fari. Jafnvel þótt leikurinn sé góður og meistaralegur allt til loka í tilfelli Kristbjargar Kjeld þá séu persónurnar ekki nógu spennandi sem slíkar.

„Sérstaklega skítt ef karlinn er afgreiddur svona, fær bara kúlu í hausinn, og sleppur við að horfast í augu við afleiðingar gerða sinna. Og frúin fer í kvennafangelsið.“

Jón fór yfir málin og sína tegund gagnrýni í Bítinu á Bylgjunni í haust.

Jón Viðar slær á létta strengi í framhaldinu,

„Hún mun örugglega pluma sig vel í tukthúsinu. Sjá til þess að allt verði klassað þar upp. Svona eins og þegar þjókunnur þingmaður þurfti að dvelja um skeið á Kvíabryggju og fékk ný rúm handa öllum.“

Margir telja næsta víst að framhaldsþáttaröð verði gerð en það virðist ekki kveikja neinn neista í Jóni Viðar.

„Svona efni fær bara einn séns. Auðvitað, verði gerð framhaldssería, þá mun maður amk horfa á fyrstu þættina, en það verður þá bara af því að það er íslenskt. Ef þetta væri útlendur þriller myndi ég ekki eyða tíma í framhald.“

Að neðan má sjá færslu Jóns Viðars en svo virðist sem hann syndi á móti straumnum. Aðeins 35 hafa líkað við skrif hans en vinir hans á Facebook telja hátt í fjórða þúsund. Meðal þeirra sem eru öllu ánægðri með Fanga er Guðmundur Andri Thorsson rithöfundur en pistill hans í Fréttablaðinu í dag fjallaði um þættina. Pistillinn var þó skrifaður fyrir lokaþáttinn.


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×