Fótbolti

Draxler skorar á Özil að koma til PSG

Stefán Árni Pálsson skrifar
Julian Draxler með treyju PSG á dögunum.
Julian Draxler með treyju PSG á dögunum. mynd/psg
Julian Draxler, leikmaður PSG, vill fá landa sinn Mesut Özil til liðsins en báðir eru þeir Þjóðverjar.

Özil leikur með Arsenal en samningur hans við félagið rennur út eftir næsta tímabil. Draxler gekk til liðs við PSG frá Wolfsburg núna í janúar.

„Það er einn Þjóðverji sem ég væri til í að fá til liðsins líka, það er Mesut Özil.“

„Það fara aldrei margir Þjóðverjar úr Bundeliga, en mig langaði að prófa eitthvað nýtt og búa erlendis,“ segir Draxler en hann mælir með því fyrir aðra þýska leikmenn að fara í frönsku úrvalsdeildina. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×