Talin hafa breytt vitnisburði í kynferðisbrotamáli vegna þrýstings frá foreldrum Stefán Ó. Jónsson skrifar 1. febrúar 2017 16:39 Hæstiréttur staðfestir úrskurð héraðsdóms vísir/gva
Hæstiréttur hefur staðfest úrskurð Héraðsdóms Reykjavíkur um að 15 ára stúlku sé gert að vitna í máli gegn stjúpföður hennar sem sakaður er um kynferðisbrot og stórfelldar ærumeiðingar í hennar garð. Talið er að hún hafi breytt vitnisburði sínum eftir þrýsting frá móður sinni og stjúpföður. Upphaflega hafði ekki staðið til að stúlkan myndi bera vitni gegn stjúpföðurnum en lögreglan tók tvær skýrslur af henni vegna málsins. Þá hafði hún ekki náð 15 ára aldri. Stjúpföður hennar neitaði sök í málinu og sagði vitnisburð hennar í skýrslunum rangan. Tvö vitni, móðir stúlkunnar og sálfræðingur Barnahúss, greindu bæði frá því fyrir dómi að stúlkan hefði sagt frá því að vitnisburður hennar, þar sem hún bar sakir á stjúpföðurinn, væri rangur. Þá liggur fyrir lögregluskýrsla þar sem meðal annars segir að stúlkan hafi komið fram og greint frá því að hún hefði sagt ósatt um sakargiftir á hendur stjúpföðurnum. „Í skýrslunni segir jafnframt að talið sé að hún breyti vitnisburði sínum vegna þrýstings frá móður sinni og ákærða,“ eins og segir í dómi héraðsdóms. Réttargæslumaður stúlkunnar andmælti því fyrir hennar hönd að henni yrði gert að koma fyrir dóminn og vísaði til þeirrar erfiðu aðstöðu sem réttargæslumaðurinn kvað hana vera í. Niðurstaða héraðsdóms var þó á þá leið að í ljósi þess að stúlkan hefur náð 15 ára aldri hvíli almenn vitnaskylda á henni þótt hún hafi áður gefið skýrslu fyrir dómi undir rannsókn málsins. Auk þessa væru fram komnar ástæður sem gera það að verkum að nauðsynlegt þyki að hún komi fyrir dóminn þótt það hafi ekki staðið til í upphafi aðalmeðferðar. „Það er mat dómsins eftir að vitni báru fyrir dómi og höfðu eftir A [stúlkunni] að fyrri vitnisburður hennar væri rangur að ekki yrði hjá því komist að hún gæfi skýrslu undir aðalmeðferðinni enda orðin 15 ára gömul, sbr. 1. mgr. 116. gr. laga nr. 88/2008.“ Dóminn má lesa í heild sinni hér.
Mest lesið Sprautan umdeilda sem fólk er tilbúið að borga fyrir út ævina Innlent Engu um að kenna nema „handónýtu kerfi“ Innlent Verður kominn í rafrænt eftirlit þremur árum eftir manndrápið Innlent „Ekki næstum því allir íbúar með þetta app“ Innlent Kennarar greiða atkvæði um verkfall Innlent Ákærður fyrir að nauðga barnungri frænku sinni Innlent Varaþingmaður Miðflokksins vill skoða að stofna íslenskt varnarlið Innlent Banaslysið aftur til héraðssaksóknara Innlent Drottningin baðst afsökunar á því að geta ekki boðið betra veður Innlent Skorti langtímarannsóknir á áhrifum Ozempic og Wegovy Innlent Fleiri fréttir Ýmsar áhyggjur varðandi flóttamenn í JL-húsinu Ekkert á hreinu um næstu kosningar Snjóþekja á Hellisheiði Leynd yfir aðgerðum kennara og í beinni frá höllinni Ákærður fyrir að nauðga barnungri frænku sinni Milljónagreiðslur haldi stjórnarflokkunum saman Skorti langtímarannsóknir á áhrifum Ozempic og Wegovy Bílastæðin malbikuð og nýr útsýnispallur fyrir fatlað fólk Reyna að ná til nýbúa til að Ísland verði fyrsta reyklausa þjóðin Varaþingmaður Miðflokksins vill skoða að stofna íslenskt varnarlið Kennarar greiða atkvæði um verkfall Svandís og Sigurður Ingi verja flugvallarákvörðun Rukka fyrir stæðin í þjóðgarðinum Yazan og fjölskylda komin með vernd „Þetta er bara órætt okkar á milli“ Alvarleg staða á leikskólunum sem þurfi að taka á tafarlaust Ekkert nema styrkleikamerki að birta öryggisveikleika Hugmyndir VG um vorkosningar óræddar og Kópavogsmódelið í borginni Verður kominn í rafrænt eftirlit þremur árum eftir manndrápið Skjáskotin hafi ekki farið í dreifingu Innan við helmingur nú hlynntur flugvelli í Vatnsmýri „Eins og við höfum verið að hitta gamla vini” Flugfreyjurnar segjast eiga sinn þátt í flugævintýrinu Söguleg heimsókn konungshjónanna í Jónshús Skrifstofustjóri með tuttugu ára reynslu nýr ráðuneytisstjóri Þorbjörg ætlar sér fyrsta sætið Drottningin baðst afsökunar á því að geta ekki boðið betra veður Engu um að kenna nema „handónýtu kerfi“ „Ekki næstum því allir íbúar með þetta app“ Sprautan umdeilda sem fólk er tilbúið að borga fyrir út ævina Sjá meira