Vegtollar dæmigert pólitískt þras sem engar ákvarðanir hafi verið teknar um Jóhann K. Jóhannsson skrifar 19. febrúar 2017 14:34 Jón Gunnarsson er samgönguráðherra. Vísir/Anton
Samgönguráðherra segir að engin ákvörðun hafi verið tekin um að setja á vegatolla á valdar leiðir í kringum höfuðborgarsvæðið. Hann segir starfshóp sem hann skipaði einungis vinna að tillögum um leiðir til fjármögnunar á samgöngumannvirkjum. Hugmyndir samgönguráðherra, um að setja vegatoll á valdar leiðir í kringum höfuðborgarsvæðið, hafa víða fallið í grýttan jarðveg en settur hefur verið saman starfshópur til þess að vinna að hugmyndum um nýjar leiðir í fjármögnun samgöngumannvirkja. Katrín Jakobsdóttir, formaður Vinstri grænna var gestur Kristjáns Kristjánssonar, ásamt Loga Einarssyni, formanni Samfylkingarinnar og Jóni Gunnarssyni samgönguráðherra á Sprengisandi á Bylgjunni í morgun. Katrín og Logi eru ekki fylgjandi hugmyndum samgönguráðherra og sagði Katrín það grundvallaratriði hvernig skattabyrgðinni á almenning í landinu væri dreift.Hugnast ekki sértæk gjaldheimta„Það er auðvitað ekkert hægt að benda á mig og segja bara „skattahækkanir, skattahækkanir," þegar ég er að tala fyrir annars konar leiðum eins og til dæmis að skattleggja betur arðinn af auðlindinni. Skattleggja fremur þá sem eiga mest fjármagnið og þegar kemur að vegagjöldum þá er það auðvitað mikil og stór spurning hvernig í ósköpunum ætti að útfæra slíka tolla - EF við erum á annað borð til í það,“ sagði Katrín. „Ég hef sagt að mér lítist ekki vel á þessar hugmyndir því ég sé ekki betur en að í stað þess að fjármagna vegakerfið úr okkar sameiginlegu sjóðum með almennri skattheimtu þá eigi að fara í sértæka gjaldheimtu á tilteknum leiðum. Það bitnar helst á þeim, eins og ég hef skilið þetta, sem búa hér í kringum höfuðborgarsvæðið og eru á þessum fjölförnu leiðum hér í kring.“ Logi Einarsson, formaður Samfylkingarinnar, sagði að stjórnvöld væru ekki að fullnýta skattakerfið.„Við erum að færa meiri byrgðar yfir á þá lægri launuðu á kostnað hinna hærri. Við erum með ferðaþjónustu hér sem er með 20 milljarða króna skattaafslátt þannig að fyrst hefði manni fundist að það ætti að nota þessar almennu reglur áður en við færum í svona sértæk úrræði,“ sagði Logi.Engar ákvarðanir teknarJón Gunnarsson, samgönguráðherra, sagði umræðuna dæmigert pólitískt þras. „Báðir þessir flokkar [Samfylking og Vinstri græn] hafa nefnilega lagt fram hugmyndir um þetta áður en nú er þetta orðið ómögulegt því „aðstæður voru öðruvísi þá,“ sagði Jón kaldhæðinn. Hann bætti við að tillögur starfshópsins ættu að vera tilbúnar í vor. „Um þetta hefur engin ákvörðun verið tekin. Um þetta verður haft náið samráð við alla hagsmunaaðila. Það eina sem við erum að gera núna er að láta kortleggja þessa vinnu. Við ætlum að hafa þennan valkost á borðinu í vor til þess að ræða hvort að þetta geti verið skynsamlegt að fara hér í stórkostlegar umbætur sem hafa síðan þessi ruðningsáhrif um allt land,“ sagði Jón Þá vildi samgönguráðherra að málefnin yrðu rædd á málefnanlegan hátt. „Við erum að gera það,“ sagði Logi Einarsson þá. „Og ef þú ætlast til þess að við látum á okkur þinn hatt og skoðum málið út frá þeim sjónarhornum, sem við munum gera og erum að opna á, þá skalt þú líka setja á þig okkar hatt og skoða: „Eigum við aðrar leiðir til, meðal annars í gegnum almenna skattkerfið?“ sagði Logi Einarsson. Spjallið má heyra í spilaranum hér að ofan.
Mest lesið Lést í umferðarslysi við Álfabakka Innlent Tuttugu og þrjár konur stíga fram og fórnarlömb raðnauðgara talin á sjöunda tug Erlent „Auðvitað lét ég hann heyra það“ Innlent Þingkonur þjarma að heilbrigðisráðherra Innlent Flugmaðurinn sem týndi herþotu tjáir sig Erlent Þurfa ekki að skila Stálskipaauðnum Innlent Handtökur hér á landi þegar stór barnaníðssíða var tekin niður Innlent „Þetta er bara brandarakvöld“ Innlent Erlendir ferðamenn gripnir glóðvolgir Innlent Stöðumælaverðir lausir við ákvörðun um sekt Innlent Fleiri fréttir Stöðvuðu smygl á tuttugu þúsund Oxycontin-töflum Þrumustuð þegar lag Barnamenningarhátíðar var frumflutt Útiloka ekki frekari aðgerðir vegna barnaníðssíðunnar Stjórnarformaður vísisjóðs nýr forseti Félagsvísindasviðs HÍ Engin virkni í sprungunni og umfangsmikil lögregluaðgerð Erlendir ferðamenn gripnir glóðvolgir Harma að upplýsingar hafi verið sendar út fyrir mistök Tveimur sleppt og þrír eftir í haldi Þingkonur þjarma að heilbrigðisráðherra Þurfa ekki að skila Stálskipaauðnum Furðar sig á undirritun án aðkomu Alþingis Vilja hagræða í Reykjavík og leita til borgarbúa Grindvíkingum hleypt inn í bæinn á ný Fimm ára nauðgunardómur stendur Boðar brottvísanir brotamanna og afnám átján mánaða reglu Handtökur hér á landi þegar stór barnaníðssíða var tekin niður Segir Viðreisn óforbetranlegan stjórnlyndisflokk Aðalmeðferð hafin í Menningarnæturmáli Bein útsending: Þjóðaröryggi – Íslendingar og hafið Stöðumælaverðir lausir við ákvörðun um sekt Svæðisstjóri Vegagerðarinnar sleginn vegna banaslyssins Möguleiki að kvikugangurinn opnist nærri Reykjanesbraut Möguleiki að gos hefjist norðanmegin en ólíklegt þó Af neyðarstigi og á hættustig 48 þúsund króna sekt fyrir að beita hund harðýðgi „Þetta er bara brandarakvöld“ Hafa núna skrifborð þar sem áður var flugstýri Meðalævilengd eykst milli ára og ungbarnadauði minnkar Lést í umferðarslysi við Álfabakka „Auðvitað lét ég hann heyra það“ Sjá meira