Innlent

Allt að 100% afsláttur á íslenskum veitingastöðum í þágu barna

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Ylfa Helgadóttir meistarakokkur er eigandi veitingahússins Kopar sem tekur þátt í verkefninu. 100 prósent afsláttur er veittur af barnamatseðli staðarins á meðan átakinu stendur.
Ylfa Helgadóttir meistarakokkur er eigandi veitingahússins Kopar sem tekur þátt í verkefninu. 100 prósent afsláttur er veittur af barnamatseðli staðarins á meðan átakinu stendur. Vísir/Stefán
Út að borða fyrir börnin, fjáröflunarátak Barnaheilla og veitingastaða hófst í gær og stendur yfir til 15. mars. Alls styðja 40 staðir átakið á 109 stöðum í öllum landsfjórðungum með því að láta hluta af verði valinna rétta renna til verkefna sem snúa að vernd barna gegn ofbeldi. Aldrei hafa fleiri staðir tekið þátt í átakinu sem nú fer fram í sjöunda sinn og stendur yfir í einn mánuð.

„Við erum himinlifandi með þennan fjölda veitingastaða sem eru tilbúnir að styðja málstaðinn á þennan hátt,” segir Erna Reynisdóttir, framkvæmdastjóri Barnaheilla – Save the Children á Íslandi, í fréttatilkynningu.

„Samtökin okkar eru háð velvilja og stuðningi bæði almennings og fyrirtækja og þetta hjálpar okkur að vinna enn betur að þeim frábæru og mikilvægu verkefnum sem heyra undir þennan málaflokk hjá okkur.”

Ísland festi barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna í lög árið 2013 og í honum er börnum tryggður réttur til verndar gegn ofbeldi. Það er hlutverk hinna fullorðnu að gæta þess að hvert og eitt barn njóti réttar síns.

Eitt stærsta verkefni Barnaheilla sem snýr að vernd barna gegn ofbeldi er Vinátta, forvarnarverkefni gegn einelti í leikskólum. Verkefnið er danskt að uppruna, byggt á nýjustu rannsóknum um einelti og hefur reynst sérstaklega vel. Nú er unnið að því að þýða og staðfæra efni fyrir fyrstu bekki grunnskóla.

„Þú getur slegið tvær flugur í einu höggi með því að fara út að borða með börnin. Bæði veitir þú börnunum gleði og átt með þeim samverustundir og styður í leiðinni mannréttindi barna og vernd þeirra gegn ofbeldi,” segir Erna en nánar má lesa um verkefnið á vef Barnaheilla.

Að neðan má sjá lista yfir veitingastaðina sem taka þátt í verkefninu og hve mikinn afslátt hver og einn veitir.

900 GRILLHÚS - 50% AF BARNAMATSEÐLI

Vestmannabraut 23, Vestmannaeyjum

AKUREYRI BACKPACKERS – 25% AF KLASSÍSKUM HAMBORGARA

Hafnarstræti 98, Akureyri

BRYGGJAN – 25% AF BARNAMATSEÐLI

Strandgötu 49, Akureyri

CAFÉ BLUE – 50% AF BARNAMATSEÐLI

Kringlunni, Reykjavík

COOCOO'S NEST – 50% AF ÖLLUM RÉTTUM FYRIR BÖRN

Grandagarði 23, Reykjavík

CULIACAN – 25% AF BARNAMATSEÐLI

Suðurlandsbraut 4a, Reykjavík

DOMINOS – 35% AF SÓTTUM PIZZUM, GILDIR EKKI Á TILBOÐUM

22 staðir víða um landið

EINARSHÚSIÐ – 25% AF BARNAMATSEÐLI

Bolungarvík

EINSI KALDI – 50% AFSLÁTTUR FYRIR BÖRN

Vestmannabraut 28, Vestmannaeyjum

ELDOFNINN GRÍMSBÆ – 25% AF MARGARITU PIZZU

Grímsbæ við Bústaðarveg, Reykjavík

GRILL 66 – 25% AF PYLSU OG SVALA

11 staðir víða um landið

HAMBORGARAFABRIKKAN – 25% AF BARNAMATSEÐLI

Höfðatorgi, Kringlunnni og á Akureyri

HÓTEL SELFOSS – 25% AF 3JA RÉTTA MATSEÐLI: REYKT ÖND, LAMBAFILLET EÐA FISKUR DAGSINS OG SÚKKULAÐIKAKA

Eyrarvegi 2, Selfossi

HVER RESTAURANT – 50% AF BARNAMATSEÐLI

Breiðumörk 1c, Hveragerði

HVÍTI RIDDARINN – 30% AF BARNAMATSEÐLI

Háholti 13, Mosfellsbæ

ÍSLENSKA FLATBAKAN – 25% AF HVÍTLAUKSBRAUÐI, BÖKU MEÐ 2-3 ÁLEGGJUM (SÉRÁLEGG GILDA EKKI) OG EFTIRRÉTTABÖKU

Bæjarlind 2, Kópavogi

KFC – 25% AF BARNAMATSEÐLI

8 staðir í Reykjavík, Hafnarfirði, Kópavogi, Reykjanesbæ, Mosfellsbæ og Selfossi

KOPAR – 100% AF BARNAMATSEÐLI

Geirsgötu 3, Reykjavík

KRINGLUKRÁIN – 25% AF BARNAMATSEÐLI

Kringlunni 4-12, Reykjavík

LAUGAÁS – 25% AF BARNAMATSEÐLI

Laugarásvegi 1, Reykjavík

LAUNDROMAT – 25% AF BARNAMATSEÐLI

Austurstræti 9, Reykjavík

MAR – 15% AF BARNAMATSEÐLI OG AF TVEIMUR RÉTTUM FYRIR FULLORÐNA

Geirsgötu 9, Reykjavík

NAUTHÓLL – 50% AF BARNAMATSEÐLI

Nauthólsvegi 106, Reykjavík

NINGS – 50% AF BARNAMATSEÐLI

3 staðir í Hlíðarsmára í Kópavogi, Suðurlandsbraut og Stórhöfða í Reykjavík

PIZZA HUT – 25% AF BARNAMATSEÐLI

Smáralind, Kópavogi

ROADHOUSE – 25% AF BARNAMATSEÐLI

Snorrabraut 56, Reykjavík

ROSSOPOMODORO – 25% AF BARNAMATSEÐLI

Laugavegi 40, Reykjavík

RUB 23 – 50% AF BARNAMATSEÐLI

Kaupvangsstræti 6, Akureyri

RUBY TUESDAY – 25% AF BARNAMATSEÐLI

2 staðir á Höfðabakka 9 og Skipholti 19 í Reykjavík

SAFFRAN – 25% AF BARNAMATSEÐLI

4 staðir í Glæsibæ og á Bildshöfða í Reykjavík, á Dalvegi í Kópavogi og Bæjarhrauni í Hafnarfirði

SALT CAFÉ & BISTRO – 25% AF BARNAMATSEÐLI OG AF EINNI PIZZU Á MATSEÐLI

Miðvangi 2-4, Egilsstöðum 

SIGLÓ HÓTEL – 25% AF BARNAMATSEÐLI OG AF TVEIMUR RÉTTUM Á BARMATSEÐLI

Snorragata 3, Siglufirði

SJÁVARGRILLIÐ – 100% AF BARNAMATSEÐLI 

Skólavörðustíg 14, Reykjavík

SKRÚÐUR – 25% AF BARNAMATSEÐLI

Hótel Sögu, Reykjavík

SMURSTÖÐIN – 25% AFSLÁTTUR FYRIR BÖRN TIL 12 ÁRA ALDURS

Hörpunni, Reykjavík

SÓLON – 50% AFSLÁTTUR AF BARNAMATSEÐLI

Bankastræti 7a, Reykjavík

SUBWAY – 25% AF BARNAMATSEÐLI

23 staðir víða um landið

TACO BELL – 25% AF BARNAMATSEÐLI

2 staðir, Hjallahrauni 15 í Hafnarfirði og Þjóðhildarstíg 1 í Grafarholti

VON MATHÚS – 50% AF BARNAMATSEÐLI

Strandgötu 75, Hafnarfirði

ÞRASTALUNDUR – 100% AF BARNAMATSEÐLI OG 25% AF BRUNCH

Þrastalundi við Þrastaskóg




Fleiri fréttir

Sjá meira


×