Innlent

Fórnarlambi í nauðgunarmáli skipað að senda héraðssaksóknara tölvupóst

Sunna Karen Sigurþórsdóttir skrifar
Maðurinn var sakaður um að hafa nauðgað konunni, svipt hana frelsi, ráðist á hana og tekið myndir af kynfærum hennar.
Maðurinn var sakaður um að hafa nauðgað konunni, svipt hana frelsi, ráðist á hana og tekið myndir af kynfærum hennar. vísir/getty
Konan sem varð fyrir grófu ofbeldi af hendi sambýlismanni sínum í fyrra segist hafa verið beitt þrýstingi til að breyta framburði sínum fyrir dómi. Hún segir manninn sjálfan og föður hans hafa krafist annars framburðar ásamt því sem maðurinn hafi skipað sér að senda héraðssaksóknara tölvupóst um að sér hafi ekki verið nauðgað. Þetta kom fram í máli konunnar fyrir dómi.

Sambýlismaður konunnar var í Héraðsdómi Reykjavíkur í morgun dæmdur í fjögurra ára fangelsi fyrir að hafa svipt konuna frelsi, nauðgað henni og beitt hana grófu ofbeldi í febrúar í fyrra, en tveggja ára sonur konunnar varð vitni að hluta atburðarins. Maðurinn sætti gæsluvarðhaldi vegna málsins í rúmt ár á grundvelli almannahagsmuna.

Maðurinn, sem er fæddur árið 1992, var í Héraðsdómi Reykjavíkur í júní í fyrra dæmdur í tveggja og hálfs árs fangelsi vegna ofbeldisins, líkt og greint var frá á Vísi í morgun. Sá dómur var hins vegar ómerktur í Hæstarétti að kröfu héraðssaksóknara á þeim forsendum að í honum fælist þversögn; að maðurinn hefði verið sakfelldur fyrir nauðgun fyrir að hafa þvingað konuna til munnmaka, en ekki fyrir að hafa þvingað hana til endaþarmsmaka.

Fjölskipaður héraðsdómur sakfelldi manninn í öllum ákæruliðum í dag. Hann var fundinn sekur um að hafa þvingað konuna bæði til munn- og endaþarmsmaka, sem og líkamsárás, en maðurinn var í fyrra skiptið aðeins sakfelldur fyrir hluta þessara ákæruliða.

Framburður konunnar var talinn skýr um það að hún hafi verið mótfallin kynmökunum. Hún hafi reynt að komast undan þeim en gefið eftir af ótta við ákærða og þannig sé ekki hægt að líta svo á að um samþykki hennar hafi verið að ræða.  Við aðalmeðferð málsins í fyrra skiptið sagði konan að maðurinn hefði verið í góðri trú og ekki vitað annað en að hún væri samþykk mökunum.

Hvað líkamsárásina varðar var maðurinn í fyrra skiptið sakfelldur fyrir líkamsárás að hluta, en dómurinn taldi þá ekki sannað að hann hefði tekið konuna hálstaki. Maðurinn hafði játað árásina að hluta en sagðist ekki geta útilokað neitt enda undir áhrifum þennan dag. Hann var í morgun sakfelldur fyrir árásina í heild.

Árið sem maðurinn var í gæsluvarðhaldi kemur til frádráttar fjögurra ára dómnum. Hann þarf að greiða konunni þrjár milljónir króna í miskabætur.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×