Hollensk kona dæmd í árs fangelsi fyrir fíkniefnasmygl Sunna Karen Sigurþórsdóttir skrifar 15. febrúar 2017 13:31 Í dómnum segir að ljóst sé að konan hafi verið burðardýr, en hún var samvinnufús við lögreglu. Hún játaði brot sitt skýlaust. vísir/hari
Hollensk kona var í Héraðsdómi Reykjaness í morgun dæmd í tólf mánaða fangelsi fyrir að hafa smyglað tæplega 373 grömmum af kókaíni hingað til lands í desember í fyrra. Henni var jafnframt gert að greiða rúmlega 1,3 milljónir króna í sakarkostnað. Konan kom hingað til lands með flugi frá Dusseldorf í Þýskalandi 22. desember 2016. Hún er sögð hafa flutt efnin í líkama sínum í átta pakkningum, en fíkniefnin voru með 81 prósent styrkleika, að því er fram kemur í dómi héraðsdóms. Þá segir í dómnum að ljóst sé að konan hafi verið svokallað burðardýr og verið samvinnufús við rannsókn málsins, en hún játaði brot sitt skýlaust. Dómurinn taldi, að þessu virtu og með hliðsjón af magni fíkniefnanna, að refsing þyki hæfilega ákveðin fangelsi í tólf mánuði. Konan sætti gæsluvarðhaldi frá 23. desember fram að uppkvaðningu dómsins, og kemur það til frádráttar refsingunni. Henni var einnig gert að greiða þóknun skipaðs verjanda síns og aksturskostnað hans, rúmlega 800 þúsund krónur.
Mest lesið Fylgdu eftir ábendingum um aðkomu undirheimanna Innlent Uppruni stjarnanna óþekktur: „Hver andskotinn hefur verið að setja þetta inn?“ Innlent Svikahrappurinn bjó í íbúð hinnar látnu í níu ár Innlent „Ef hann hefði verið einn þá hefði þetta getað farið miklu verr“ Innlent Ekki í belti og undir áhrifum þegar hann lést Innlent Íslensk flugáhöfn horfði á ljónaárás rétt við hótelið Innlent Skipti öllu máli að telja drykkina Innlent Skaut hundinn sjálfur og fékk háa sekt Innlent Af hverju er barnið mitt alltaf að segja Skibidi toilet? Innlent Dómur yfir Alberti kveðinn upp á fimmtudag Innlent Fleiri fréttir Íbúakosning verður haldin í Hafnarfirði Segir að verjast þurfi árásum á flugvöllinn með fullum hnefa Búið að byrgja brunninn Lopabuxur og geitavesti á tískusýningu í sveitinni Nýir aðilar ráðast í uppbyggingu Vesturbugtar Formenn stjórnarflokkanna hljóti að ræða framhaldið Orðinn „kokhraustur kvenhatari“ og tækifærissinni Stjórnlaus ásókn í megrunarlyf og „árás“ á flugvöll Svikahrappurinn bjó í íbúð hinnar látnu í níu ár Dómur yfir Alberti kveðinn upp á fimmtudag Með ófullnægjandi hjálm þegar banaslys varð „Það er af og frá að ég hafi brotið lög“ Fjölmenntu í Aðalbyggingu HÍ og vilja svör frá rektor „Þingflokkur Pírata braut á mér“ Áfram lokuð þar sem viðgerðirnar undu upp á sig Spurð hvort hún ætli sér ekkert meira en kennarastarf Niðurstaða um Ölfusárbrú væntanleg í þessari viku Skaut hundinn sjálfur og fékk háa sekt Hætta að sekta fyrir notkun nagladekkja Svandís ræðir við hina formennina og ár af átökum fyrir botni Miðjarðarhafs Fylgdu eftir ábendingum um aðkomu undirheimanna Ræstu út mannskap til að kanna frágang fleiri brunna Afgerandi meirihluti með málstað Palestínumanna Ekki í belti og undir áhrifum þegar hann lést Skiptar skoðanir um umtalaða bókun við EES-samninginn Augljóst að ríkisstjórnarsamstarfið sé að nálgast leiðarlok Holan alls ekki eina slysagildran Skipti öllu máli að telja drykkina Segir ráðherra neita að afhenda gögn um bókun 35 Tveir handteknir í tengslum við slagsmál Sjá meira