Innlent

Ársfundur alþjóðasamtaka kvenþingmanna haldinn hér á landi í haust

atli ísleifsson skrifar
Unnur Brá Konráðsdóttir, forseti Alþingis, og Silvana Koch-Mehrin, stofnandi Women in Parliaments Global Forum.
Unnur Brá Konráðsdóttir, forseti Alþingis, og Silvana Koch-Mehrin, stofnandi Women in Parliaments Global Forum. alþingi
Unnur Brá Konráðsdóttir, forseti Alþingis, og Silvana Koch-Mehrin, stofnandi Women in Parliaments Global Forum, undirrituðu á föstudag sameiginlega yfirlýsingu um að halda ársfund þessara alþjóðlegu samtaka kvenþingmanna á Íslandi í lok nóvember 2017.

Í tilkynningu frá Alþingi segir að markmið samtakanna sé að efla tengslanet kvenna á þingum og allar konur sem eiga sæti á þjóðþingum, eða á Evrópuþinginu, eigi rétt til aðildar.

„Búast má við nokkur hundruð þátttakendum víðs vegar úr heiminum á ársfundinn sem verður vettvangur til að miðla reynslu af leiðum til að efla jafnrétti og þátttöku kvenna í stjórnmálum og á opinberum vettvangi.  Árangur Íslands í jafnréttismálum var forsvarsmönnum samtakanna innblástur til að leita samstarfs um að halda ársfundinn hér á landi. 

Samhliða ársfundi Women in Parliaments Global Forum munu samtök kvenþjóðarleiðtoga, Council of World Women Leaders, halda fund sinn hér á landi.  Samtökin voru stofnuð af Vigdísi Finnbogadóttur, fyrrverandi forseta Íslands, árið 1996 og er hún jafnframt heiðursfélagi Women in Parliaments Global Forum,“ segir í tilkynningunni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×