Innlent

Höfnin rekur á eftir borginni í vitamáli

Garðar Örn Úlfarsson skrifar
Nýi vitinn á að standa við Sæbraut rétt austan við Höfða.
Nýi vitinn á að standa við Sæbraut rétt austan við Höfða. Mynd/Yrki arkitektar
Stjórn Faxaflóahafna vill að Reykjavíkurborg ljúki sem fyrst við gerð deiliskipulags vegna innsiglingarvita við Sæbraut.

Á fundi hafnarstjórnarinnar síðastliðinn föstudag var lögð fram ný tillaga frá Yrki arkitektum þar sem vitinn er sýndur mun hærri en í fyrri útfærslu.

Málið hefur verið á borði hafnarstjórnar í tæp tvö ár. Það á rætur sínar að rekja til mikillar fjölgunar háhýsa við Höfðatorg sem skyggja á innsiglingarvitann á Sjómannaskólanum.

Fréttin birtist fyrst í Fréttablaðinu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×