Innlent

Rúlletta við hestaheilsu

Benedikt Bóas skrifar
Rúlletta ásamt Ólafi Jónssyni, bónda.
Rúlletta ásamt Ólafi Jónssyni, bónda. mynd/einar ófeigur björnsson
„Ég skil ekki hvernig lambið gat lifað í þrjá mánuði og hreinlega ekki dáið úr þorsta. Það er ofar mínum skilning,“ segir bóndinn Ólafur Jónsson á Fjöllum 1 í Öxarfirði. Lambið Rúlletta, eins og Ólafur hefur nefnt, bindur ekki bagga sína sömu hnútum og önnur lömb og dvaldi inn í einni heyrúllunni í hartnær þrjá mánuði. Át sig inn í heyrúllustæðu Ólafs og hafði það að því er virðist nokkuð fínt. Því lá allavega ekkert á að láta finna sig.

Ólafur var að sækja heyrúllu, rúma 120 metra frá bænum, og þegar hann lyfti upp einni slíkri blasti stórt gat við honum. Inn í því var lambið. Vissi hann strax að þetta væri lamb númer 146 sem hafði verið saknað í hartnær þrjá mánuði.

„Ég er miður mín að þetta hafi gerst aðeins 120 metrum frá húsunum. Ég mátti hreinlega fá mér bjór til að róa mig, einn fyrir svefninn,“ segir hann.

Rúlletta er hér í rúllunni sem hún dvaldi í í um þrjá mánuði.mynd/einar ófeigur björnsson
„Lambið fer inn í stæðuna og hverfur alveg. Þetta er á þannig stað að ég fer þangað bara á dráttarvél. En það mátti sjá skítaslóðina eftir lambið og hvernig það hefur étið sig inn. Hún var eðlilega mjög stygg og en byrjaði að jórtra alveg um leið og drakk nánast 10 lítra.“

Hann segir að lambið hafi hreinlega ekki geta bakkað og því borðað sig áfram. „Ég kíkti í morgun á Rúllettu hún hefur það nokkuð fínt. Þetta er þrílembingur, sem eru nú yfirleitt minni. Hér hefur ekki fundist fé eftir áramót sem ég man eftir. Það komu einhvern tímann tveir lambhrútar en þetta er þannig svæði að hér finnast ekki lömb eftir áramót.“

Ólafur er miður sín yfir að Rúlletta hafi þurft að dúsa þarna inn í stæðunni í allan þennan tíma svona skammt frá bænum. En hann ætlar að hlaupa undir bagga með að koma lambinu til heilsu. Það er stutt í gleðina hjá Ólafi sem samdi limru í tilefni dagsins:

Hún Rúlletta óð undir stæðu

og ætlaði að ná sér í fæðu

En hún komst ekki burt

og varð því um kjurrt

og varð þetta að mikilli mæðu

Lesendur Vísis eru hvattir til að semja limru eða vísu um Rúllettu og hennar raunir og senda þær á tölvupóstfangið ritstjorn@visir.is.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×