Innlent

Kvöldfréttir Stöðvar 2: „Hann er endurfæddur í öðrum líkama“

Nadine Guðrún Yaghi skrifar
Morguninn 14. október árið 2014 lenti Kristófer Auðunsson í skelfilegu bílslysi á leið í skólann. Faðir hans, Auðunn Pálsson, var á leið í vinnuna á sama tíma og fylgdi syni sínum á spítalann.

Eftir slysið gjörbreyttist líf fjölskyldunnar en Kristófer vaknaði nokkrum dögum seinna, breyttur persónuleiki. Hann hafði hlotið alvarlegan heilaskaða.

Í kvöldfréttum Stöðvar 2 heyrum við sögu þeirra feðga allt frá slysinu til dagsins í dag, en núna, rúmum tveimur árum eftir slysið, eru allar dyr lokaðar og engin meðferð í boði fyrir Kristófer.

Ekki missa af áhrifaríku viðtali við þá feðga, í kvöldfréttum Stöðvar 2, sem hefjast á slaginu 18.30.

 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×