Kol og kjarnorka í útflutningsbókhaldið Sveinn Arnarsson skrifar 14. febrúar 2017 07:00 Vinnsla HB Granda er öflug á Vopnafirði. mynd/jón sigurðarson
Kolefnisfótspor íslenskrar framleiðslu hefur aukist eftir að íslensk orkufyrirtæki hófu að selja svokallaðar upprunaábyrgðir á grænni íslenskri orku úr landi. „Nú eru einstaka kaupendur farnir að kalla eftir kolefnisfótspori vörunnar og hafa sum fyrirtæki, líkt og HB Grandi, hafið skráningu á loftslagsbókhaldi,“ segir Garðar Svavarsson, framkvæmdastjóri uppsjávarsviðs HB Granda. „Afleiðingar sölu upprunaábyrgða úr landi eru þær að íslensk fyrirtæki þurfa þá að skrá kjarnorku og kol í bókhald sitt.“ Íslensk orkufyrirtæki hófu þátttöku í kerfi með upprunaábyrgðir árið 2011. Stærstu orkufyrirtækin hafa fengið útgefnar upprunaábyrgðir hjá Landsneti og hafa þær að langstærstum hluta verið seldar kaupendum utan Íslands. Hins vegar er vitað að kaupendur upprunaábyrgða erlendis nýta sér ekki orkuna. Hér á landi er nærri allt rafmagn á ársgrundvelli framleitt á umhverfisvænan hátt og er Ísland leiðandi í heiminum þegar kemur að grænni orku. Fyrirtæki hérlendis nýta þessa grænu orku en þurfa að bókfæra kol og kjarnorku. „Þetta hefur vakið undrun okkar sem kaupenda hreinnar orku. Við skorum á stjórnvöld að koma í veg fyrir sölu á upprunaábyrgðum erlendis og standa þannig vörð um orðspor íslenskra sjávarafurða,“ segir Garðar. Fréttin birtist fyrst í Fréttablaðinu.
Birtist í Fréttablaðinu Mest lesið Fylgdu eftir ábendingum um aðkomu undirheimanna Innlent Uppruni stjarnanna óþekktur: „Hver andskotinn hefur verið að setja þetta inn?“ Innlent Svikahrappurinn bjó í íbúð hinnar látnu í níu ár Innlent „Ef hann hefði verið einn þá hefði þetta getað farið miklu verr“ Innlent Ekki í belti og undir áhrifum þegar hann lést Innlent Íslensk flugáhöfn horfði á ljónaárás rétt við hótelið Innlent Skipti öllu máli að telja drykkina Innlent Skaut hundinn sjálfur og fékk háa sekt Innlent Af hverju er barnið mitt alltaf að segja Skibidi toilet? Innlent Dómur yfir Alberti kveðinn upp á fimmtudag Innlent Fleiri fréttir Íbúakosning verður haldin í Hafnarfirði Segir að verjast þurfi árásum á flugvöllinn með fullum hnefa Búið að byrgja brunninn Lopabuxur og geitavesti á tískusýningu í sveitinni Nýir aðilar ráðast í uppbyggingu Vesturbugtar Formenn stjórnarflokkanna hljóti að ræða framhaldið Orðinn „kokhraustur kvenhatari“ og tækifærissinni Stjórnlaus ásókn í megrunarlyf og „árás“ á flugvöll Svikahrappurinn bjó í íbúð hinnar látnu í níu ár Dómur yfir Alberti kveðinn upp á fimmtudag Með ófullnægjandi hjálm þegar banaslys varð „Það er af og frá að ég hafi brotið lög“ Fjölmenntu í Aðalbyggingu HÍ og vilja svör frá rektor „Þingflokkur Pírata braut á mér“ Áfram lokuð þar sem viðgerðirnar undu upp á sig Spurð hvort hún ætli sér ekkert meira en kennarastarf Niðurstaða um Ölfusárbrú væntanleg í þessari viku Skaut hundinn sjálfur og fékk háa sekt Hætta að sekta fyrir notkun nagladekkja Svandís ræðir við hina formennina og ár af átökum fyrir botni Miðjarðarhafs Fylgdu eftir ábendingum um aðkomu undirheimanna Ræstu út mannskap til að kanna frágang fleiri brunna Afgerandi meirihluti með málstað Palestínumanna Ekki í belti og undir áhrifum þegar hann lést Skiptar skoðanir um umtalaða bókun við EES-samninginn Augljóst að ríkisstjórnarsamstarfið sé að nálgast leiðarlok Holan alls ekki eina slysagildran Skipti öllu máli að telja drykkina Segir ráðherra neita að afhenda gögn um bókun 35 Tveir handteknir í tengslum við slagsmál Sjá meira