Fleiri aldraðir telja heilbrigðisþjónustu hafa versnað sunna karen sigurþórsdóttir skrifar 13. febrúar 2017 14:06 Landspítalinn við Hringbraut. vísir/vilhelm
Fleiri aldraðir nú en áður, eða 45 prósent, telja heilbrigðisþjónustu hafa versnað á undanförnum árum, sé miðað við sambærilegar mælingar árin 2007 og 1999. Þetta kemur fram í nýrri könnun á vegum velferðarráðuneytisins um hagi og líðan aldraðra á Íslandi árið 2016.Alls töldu 16 prósent þjónustuna hafa batnað, sem er sambærilegt og árið 2012 þegar hlutfallið var 17 prósent. Það var hins vegar 43 prósent árið 2007. Eldri borgarar voru í könnuninni í ár nokkuð sáttir við aðgengi að þeirri heilbrigðisþjónustu sem þeir þurfa á að halda en um þrír af hverjum fjórum, eða 74 prósent, taldi aðgengið mjög eða frekar gott. Því verri heilsu sem fólk telur sig hafa því lægra hlutfall telur aðgengi að heilbrigðisþjónustu gott. Könnunin er gerð í fjórða sinn, en hún var fyrst gerð árið 1999, svo árið 2006 og í þriðja sinn árið 2012. Tekið var 1800 manna tilviljunarúrtak 67 ára og eldri úr þjóðskrá og spurningar lagðar fyrir í síma eða með netkönnun. Alls svöruðu 1028 könnuninni.258 þúsund krónur að jafnaði – tekjur kvenna lægri en karla Ráðstöfunartekjur þeirra sem tóku þátt í könnuninni voru að jafnaði 258 þúsund krónur á mánuði. Tekjur kvenna voru 24 prósent lægri en karla og þá voru ráðstöfunartekjur heimila kvenna töluvert lægri, en meðalráðstöfunartekjur heimila aldraðra voru 404 þúsund krónur á mánuði. Þær voru að jafnaði lægri eftir því sem fólk var eldra en það er talið skýrast af því að þeir búa í meira mæli einir. „Nokkuð misræmi var á milli þeirra ráðstöfunartekna sem fólk hafði og hve háar tekjur það taldi sig þurfa. Til að mynda töldu 84 prósent þeirra sem höfðu 200 þúsund eða minna í ráðstöfunartekjur á mánuði að þau þyrfti hærri tekjur en þau hafa úr að spila, en sama gilti um 40% þeirra sem voru með ráðstöfunartekjur á bilinu 201 300 þúsund. Athygli vekur að tekjuþörf er minni með hærri aldri,“ segir í niðurstöðum könnunarinnar.Fleiri hafa áhyggjur af fjárhag Jafnframt segir að fjölgað hafi í hópi þeirra sem hefur áhyggjur af fjárhag en um þriðjungur svarenda taldi sig stundum eða oft hafa fjárhagsáhyggjur. Árið 2012 höfðu 26 prósent aldraðra sömu áhyggjur og 22 prósent árið 2006. Fjárhagsáhyggjur voru í beinu sambandi við aldur – því eldri því færri höfðu áhyggjur. Einnig höfðu þeir heilsuminni mun oftar áhyggjur en þeir sem voru við góða heilsu, en 44 prósent þeirra sem mátu heilsufar sitt mjög eða frekar slæmt höfðu sundum eða oft fjárhagsáhyggjur samanborið við 21 prósent þeirra sem töldu heilsufar sitt mjög gott. Lítill hópur aldraðra hefur einhvern tímann á síðustu fimm árum frestað því að fara til læknis og/eða kaupa lyf af fjárhagsástæðum, eða 5 til 6 prósent. „Stærsti hópurinn sem hefur frestað því að kaupa lyf eða fara til læknis er ógiftur og sá sem vill stunda launaða vinnu. Þetta er í samræmi við niðurstöður um fjárhagsáhyggjur, en þessir hópar hafa í meira mæli áhyggjur af fjárhag en aðrir hópar aldraðra,“ segir í niðurstöðunum, en lesa má skýrsluna í heild hér.
Mest lesið Fylgdu eftir ábendingum um aðkomu undirheimanna Innlent Uppruni stjarnanna óþekktur: „Hver andskotinn hefur verið að setja þetta inn?“ Innlent Svikahrappurinn bjó í íbúð hinnar látnu í níu ár Innlent „Ef hann hefði verið einn þá hefði þetta getað farið miklu verr“ Innlent Ekki í belti og undir áhrifum þegar hann lést Innlent Íslensk flugáhöfn horfði á ljónaárás rétt við hótelið Innlent Skipti öllu máli að telja drykkina Innlent Skaut hundinn sjálfur og fékk háa sekt Innlent Af hverju er barnið mitt alltaf að segja Skibidi toilet? Innlent Dómur yfir Alberti kveðinn upp á fimmtudag Innlent Fleiri fréttir Íbúakosning verður haldin í Hafnarfirði Segir að verjast þurfi árásum á flugvöllinn með fullum hnefa Búið að byrgja brunninn Lopabuxur og geitavesti á tískusýningu í sveitinni Nýir aðilar ráðast í uppbyggingu Vesturbugtar Formenn stjórnarflokkanna hljóti að ræða framhaldið Orðinn „kokhraustur kvenhatari“ og tækifærissinni Stjórnlaus ásókn í megrunarlyf og „árás“ á flugvöll Svikahrappurinn bjó í íbúð hinnar látnu í níu ár Dómur yfir Alberti kveðinn upp á fimmtudag Með ófullnægjandi hjálm þegar banaslys varð „Það er af og frá að ég hafi brotið lög“ Fjölmenntu í Aðalbyggingu HÍ og vilja svör frá rektor „Þingflokkur Pírata braut á mér“ Áfram lokuð þar sem viðgerðirnar undu upp á sig Spurð hvort hún ætli sér ekkert meira en kennarastarf Niðurstaða um Ölfusárbrú væntanleg í þessari viku Skaut hundinn sjálfur og fékk háa sekt Hætta að sekta fyrir notkun nagladekkja Svandís ræðir við hina formennina og ár af átökum fyrir botni Miðjarðarhafs Fylgdu eftir ábendingum um aðkomu undirheimanna Ræstu út mannskap til að kanna frágang fleiri brunna Afgerandi meirihluti með málstað Palestínumanna Ekki í belti og undir áhrifum þegar hann lést Skiptar skoðanir um umtalaða bókun við EES-samninginn Augljóst að ríkisstjórnarsamstarfið sé að nálgast leiðarlok Holan alls ekki eina slysagildran Skipti öllu máli að telja drykkina Segir ráðherra neita að afhenda gögn um bókun 35 Tveir handteknir í tengslum við slagsmál Sjá meira