Innlent

Dansað fyrir lífi barna

Nadine Guðrún Yaghi skrifar
Í hádeginu í dag streymdi fólk inn í World Class í Laugum til að taka þátt í 90 mínútna Zumba tíma til styrktar börnum sem nú líða skort og hörmungar í Aleppo í Sýrlandi.

Þátttaka kostaði 2000 krónur og rennur allur ágóði beint til Unicef.

Friðrik Agni Árnason, danskennari, skipulagði viðburðinn en honum fannst hann þurfa að leggja eitthvað af mörkum til að aðstoða börn sem líða skort og hörmungar í Aleppo í Sýrlandi. Hátt í 70 manns dönsuðu næstu 90 mínúturnar og var stemningin mjög góð.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×