Enski boltinn

LA Galaxy til í að gera Zlatan launahæstan í Bandaríkjunum

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Hvað gerir Svíinn í sumar?
Hvað gerir Svíinn í sumar? vísir/getty
Ef Zlatan Ibrahimovic ákveður að fara til LA Galaxy í Bandaríkjunum í sumar þá verður hann launahæsti leikmaður í sögu MLS-deildarinnar.

Zlatan kom frítt til Man. Utd frá PSG síðasta sumar. Hann skrifaði aðeins undir eins árs samning og þrátt fyrir vilja Man. Utd til að halda honum er ekki útséð með að hann verði áfram á Old Trafford.

Á síðasta ári var Brasilíumaðurinn Kaká launahæsti leikmaður MLS-deildarinnar með 783 milljónir króna í árslaun. Steven Gerrard fékk 666 milljónir króna.

Galaxy sér fyrir sér að Zlatan geti haft álíka áhrif á deildina og David Beckham er hann kom til félagsins á sínum tíma.

Galaxy telur sig eiga möguleika á að fá Zlatan en ekki liggur ljóst fyrir hvað félagið er að bjóða honum langan samning.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×