Fótbolti

Fyrstu andstæðingar Íslands á EM völtuðu yfir Bandaríkin

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Frönsku stúlkurnar fagna í Bandaríkjunum í nótt.
Frönsku stúlkurnar fagna í Bandaríkjunum í nótt. vísir/getty
Frakkar verða fyrstu andstæðingar stelpnanna okkar á EM í sumar og franska liðið er gríðarlega öflugt þessa dagana líkt og áður.

Frönsku stúlkurnar unnu í gær sterkt mót í Bandaríkjunum. Þær unnu sannfærandi sigur, 3-0, á heimamönnum í úrslitaleiknum.

Camille Abily skoraði tvö mörk fyrir Frakka í leiknum og Eugenie le Sommer eitt.

Frakkar skoruðu tvö mörk á fyrstu níu mínútum leiksins og litu aldrei til baka né gáfu færi á sér.

Leikur Íslands og Frakklands á EM fer fram þann 18. júlí.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×