Fótbolti

Umfjöllun: Ísland - Kína 2-1 | Fyrstu landsliðsmörk Málfríðar skiluðu sigrinum

Kristinn Páll Teitsson skrifar
Stelpurnar höfnuðu í 9. sæti á Portúgal.
Stelpurnar höfnuðu í 9. sæti á Portúgal. vísir/ernir
Ísland vann 2-1 sigur á Kína og tryggði sér um leið 9. sæti Alvarve-bikarsins í dag en Málfríður Erna Sigurðardóttir sem skoraði fyrsta mark sitt fyrir hönd íslenska A-landsliðsins í dag skoraði bæði mörk Íslands.

Var þetta fyrsti sigur íslenska liðsins á æfingarmótinu sem var liður í undirbúningi liðsins fyrir Evrópumótið í Hollandi í sumar þar sem Ísland mætir Frakklandi í fyrsta leik þann 18. júlí næstkomandi.

Íslenska liðið fékk óskabyrjun í báðum hálfleikjum í dag en Málfríður Erna Sigurðardóttir kom Íslandi yfir á áttundu mínútu.

Skallaði hún þá hornspyrnu Thelmu Bjarkar Einarsdóttur í netið en þetta var fyrsta mark Málfríðar í treyju íslenska landsliðsins.

Í stað þess að íslenska liðið nýtti sér markið til að ná stjórn á leiknum var það kínverska liðið sem tók öll völd.

Þrátt fyrir að skapa sér ekki mörg færi gaf kínverksa liðið því íslenska aldrei frið og áttu Stelpurnar okkar erfitt með að halda boltanum innan liðsins.

Var það því verðskuldað þegar Wang Shanshan jafnaði metin tíu mínútum fyrir lok fyrri hálfleiks eftir slæm mistök í vörn íslenska liðsins en hún hafði þegar farið illa með fín færi.

Staðan var því jöfn í hálfleik en Ísland fékk sannkallaða draumabyrjun í seinni hálfleik þegar Málfríður bætti við öðru marki sínu og öðru marki Íslands eftir frábæra hornspyrnu Margrétar Láru Viðarsdóttur. Stýrði hún boltanum í netið af stuttu færi, óverjandi fyrir markmanninn.

Íslenska liðinu gekk betur að róa niður leikinn í seinni hálfleik og fækka mistökunum en liðin fengu bæði færi til þess að bæta við mörkum.

Tang Jiali átti stangarskot fyrir kínverska liðið en hinumegin voru varamennirnir Elín Metta Jensen og Sara Björk Gunnarsdóttir nálægt því að innsigla sigurinn með þriðja marki Íslands.

Var mun meira öryggi yfir leik íslenska liðsins í seinni hálfleik og sigldu þær sigrinum einfaldlega örugglega heim þrátt fyrir að hafa dreift álaginu vel.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×