Enski boltinn

Bragðdauft og markalaust á Etihad

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Jonathan Walters tæklar Kevin De Bruyne.
Jonathan Walters tæklar Kevin De Bruyne. vísir/getty
Stoke City batt enda á sigurgöngu Manchester City þegar liðin mættust á Etihad vellinum í kvöld. Lokatölur 0-0.

Leikurinn var afar bragðdaufur. Gestirnir frá Stoke spiluðu sterkan varnarleik og City-menn áttu fá svör í sókninni.

City, sem hafði unnið fjóra leiki í röð fyrir leikinn í kvöld, er nú með jafn mörg stig (56) og Tottenham í 2.-3. sæti deildarinnar.

Stoke er áfram í 9. sæti deildarinnar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×