Mál Troadec-fjölskyldunnar: Bútaði niður lík, brenndi og gróf niður Atli Ísleifsson skrifar 7. mars 2017 14:42 Troadec-fjölskyldan hvarf sporlaust um miðjan síðasta mánuð. Pascal, Brigitte, Sebastien og Charlotte. Vísir/AFP
Maðurinn sem hefur viðurkennt að hafa myrt Troadec-fjölskylduna með kúbeini um miðjan síðasta mánuð kveðst hafa nýtt dagana sem fylgdu í að losa sig við líkin. Málið Troadec-fjölskyldunnar hefur vakið mikla athygli í Frakklandi og víðar en til að byrja með virtist sem að jörðin hafi einfaldlega gleypt hjónin Pascal og Birgitte Troadec og tvö börn þeirra, Sebastien, 21 árs, og Charlotte, átján ára. Þannig voru tannburstarnir horfnir, matvörurnar í ísskapnum teknar að rotna og blaut föt voru enn í þvottavélinni á heimili fjölskyldunnar í smábænum Orvault fyrir utan Nantes.Saknað í þrjár vikur Fjölskyldunnar hafði verið saknað í þrjár vikur þegar lögreglan lýsti því yfir að grunur lægi á að fjölskyldunni hafi verið ráðinn bani. Blóðblettir fundust á heimilinu og var upphaflega talið að sonurinn Sebastien hafi mögulega myrt báða foreldra sína og systur. Í gær var hins vegar greint frá því að maður systur Pascal, Hubert Caouissin, hafi viðurkennt í yfirheyrslu að hafa drepið fjölskylduna. Sagði lögregla að erfðadeilur, meðal annars um gullstangir, hafi leitt til þess að Caouissin drap fjölskylduna.Frá heimili Troadec-fjölskyldunnar í Orvault.Vísir/AFPLá á hleri Saksóknarinn Pierre Sennes greindi svo síðdegis í gær frá því að Caouissin hafi lýst því fyrir lögreglu hvernig hann hafi myrt Troadec-fjölskylduna. Hafi hann mætt að heimili fjölskyldunnar þann 16. febrúar og notast við hlustunartæki til að fylgjast með samtölum fjölskyldunnar í gegnum hurðir og útveggi hússins. Caouissin fullyrðir að hann hafi svo brotist inn á heimilið að nóttu til að stela lykli, en að Troadec hafi vaknað við umganginn. Þau hafi svo verið drepin þegar þau komu niður af efri hæðinni. Eftir að hafa banað hjónunum drap Caouissin börnin tvo og ók svo aftur heim til sín á Bretaníuskaga þar sem hann greindi konu sinni frá ódæðinu.Bútið niður, grafin og brennd Við yfirheyrslur sagði Caouissin að hann hafi daginn eftir ekið aftur til Orvault til að fela ummerkin um morðin. Kom hann líkunum fyrir í bíl Sebastien. „Næstu tvo, þrjá dagana reyndi hann svo að losa sig við líkin. Það lítur út fyrir að einhver þeirra hafi verið bútuð niður, önnur grafin niður og önnur brennd,“ sagði saksóknarinn Sennes, en bíll Sebastien fannst í hafnarbænum Saint Nazaire. Caouissin hafði verið yfirheyrður snemma við rannsókn hverfsins en sagðist þá ekki hafa hitt Troadec-fjölskylduna í nokkur ár. Hann breytti þó framburði sínum eftir að lífsýni af honum fundust á heimili fjölskyldunnar. Caouissin og kona hans verða nú ákærð fyrir morð og yfirhylmingu.
Tengdar fréttir Viðurkennir að hafa myrt frönsku fjölskylduna Franskir fjölmiðlar segja að maður sem tengist Troadec-fjölskyldunni fjölskylduböndum hafi viðurkennt að hafa myrt fjölskylduna sem hafur verið saknað síðan um miðjan febrúar. 6. mars 2017 09:13 Mest lesið Opinn en mannlaus veitingastaður Innlent Kosningavaktin: Íslendingar ganga að kjörborðinu Innlent Vígahópum vex ásmegin: Stór hluti Sahelsvæðisins í hættu Erlent Sé líklega met að vera hafnað af flokki sínum tvisvar í sama mánuði Innlent Húsnæði Stuðla ráði ekki við málaflokkinn og úrbætur gengið hægt Innlent Fimm þingmenn Sjálfstæðisflokk á útleið Innlent Segist ekki hafa verið beitt þrýstingi Innlent „Ég lagði allt undir“ Innlent Fethullah Gülen er látinn Erlent Fjallið hafi verið hátt og ekki tekist að klífa það Innlent Fleiri fréttir Óvíst um endanleg úrslit varðandi Evrópustefnu Moldóvu Fethullah Gülen er látinn Vígahópum vex ásmegin: Stór hluti Sahelsvæðisins í hættu Gerðu árásir á útibú meintrar fjármálaþjónustu Hezbollah Þrír táningar létust í bílslysi í Svíþjóð Enn rafmagnslaust á Kúbu „Tilraun Hezbollah til að ráða mig og konu mína af dögum voru stór mistök“ Aftur rafmagnslaust á Kúbu Sprengjudróni hæfði heimili Netanjahús Sér ekki á svörtu hjá „hinum útvalda“ Heita hertum reglum í hælisleitendamálum Ætlar ekki að leyfa Úkraínu að eignast kjarnorkuvopn Bar fram samsæriskenningar á fyrsta kosningafundinum Auðkýfingurinn ekki lengur grunaður um dauða eiginkonunnar Kim sagður ætla að senda tólf þúsund menn til Rússlands Telja árásir sænskra unglinga runnar undan rifjum Írana Hafa birt myndskeið af síðustu augnablikum Sinwar Dauði Sinwar tækifæri til að binda enda á stríðið Fall Sinwar „upphafið að endinum“ Staðfesta andlát leiðtoga Hamas Leiðtogi Hamas „líklega“ felldur „Einstök sýning“ á getu Bandaríkjanna í loftárásum Mætti á Fox í gær og á í viðræðum um viðtal við Rogan Biður um meiri pening vegna „fáránlegra“ laga Banna Ítölum að finna staðgöngumæður erlendis Hundrað ára Carter búinn að kjósa Eftirspurn eftir jarðefnaeldsneyti gæti náð hámarki á þessum áratug Opinberaði „siguráætlun“ sína á þingi Klófestu leigumorðingja sem dulbjó sig sem gamlan mann Metsekt fyrir að mismuna gyðingum og banna þeim að fljúga Sjá meira
Viðurkennir að hafa myrt frönsku fjölskylduna Franskir fjölmiðlar segja að maður sem tengist Troadec-fjölskyldunni fjölskylduböndum hafi viðurkennt að hafa myrt fjölskylduna sem hafur verið saknað síðan um miðjan febrúar. 6. mars 2017 09:13