Innlent

Indriði Ragnar nýr formaður Skotvís

Atli Ísleifsson skrifar
Indriði Ragnar Grétarsson var kosinn nýr formaður Skotveiðifélags Íslands (Skotvís) á aðalfundi félagsins sem fram fór síðastliðinn laugardag.

Indriði Ragnar tekur við formennsku af Dúa J. Landmark.

Í tilkynningu frá félaginu segir að Indriði hafi verið í stjórn Skotvís frá 2012 og varaformaður félagsins síðustu tvö árin. Gunnar Guðmundsson var kosinn varaformaður, en aðrir í stjórn eru Þórður Hilmarsson, Þorbergur Geirsson, Emil Hallgrímsson, Þórhallur Borgarsson og Sigurbjörn Snjólfsson.

„Umhverfisráðherra Björt Ólafsdóttir hélt stutt erindi á aðalfundi SKOTVÍS og svaraði spurningum að erindi loknu ásamt Jóni Geir Péturssyni skrifstofustjóra Landgæða,“ segir í tilkynningunni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×