Innlent

Tveir slasaðir eftir harðan árekstur á Lynghálsi

Birgir Olgeirsson skrifar
Umferðaróhapp varð á Lynghálsi í Reykjavík nú í hádeginu. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglu var um að ræða árekstur tveggja bíla og eru tveir slasaðir. Kalla þurfti til slökkviliðsmenn til að beita klippum svo hægt væri að ná til þeirra sem voru í bílunum.

Talsverður viðbúnaður var á vettvangi , tveir sjúkrabílar í það minnsta, lögreglubílar og slökkviliðsbíll.

Ekki liggja fyrir frekari upplýsingar um líðan slasaðra.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×