Gamalt fólk flutt í Vík í Mýrdal: Fjölskyldurnar segja það lítilsvirðingu að leggja þetta á fólkið Magnús Hlynur Hreiðarsson skrifar 19. mars 2017 20:11
Fjölskyldur tveggja aldraðra manna á Selfossi sem báðir eru með Parkison og annar ný lærbrotinn eru ósáttar við að einu úrræðin fyrir þá séu hvíldarrými í Vík í Mýrdal. Börnin sem búa í Reykjavík þurfa því að keyra tæpa 400 kílómetra til að heimsækja feður sínar og konur mannanna treysta sér ekki til að keyra svona langt. Eftir að Kumbaravogi á Stokkseyri var lokað hefur skapast ófremtarárástand í öldrunarmálum á Suðurlandi hvað varðar að koma fólki í hvíldarinnlögn, á hjúkrunarheimili eða dvalarheimili, því fólkið á Kumbaravogi hefur haft allan forgang Ingvar Daníel Eiríksson, 79 ára var fluttur í nóvember frá Selfossi á Hjallatún í Vík og fyrir viku síðan var Sigtryggur Einarsson, 81 árs, fyrrverandi mjólkurbílstjóri líka fluttur á Hjallatún, eftir að hafa verið á sjúkrahúsinu á Selfossi í nokkra mánuði í hvíldarinnlögn og eftir lærbrot, bundin í hjólastól enn með opið sár eftir brotið. Áður sinnti Ágústa, eiginkona hans honum heima og þau fengu líka heimahjúkrun. Fjölskyldur mannanna segja ástandið ekki boðlegt, ástandið sé að fara með þær.Sigtryggur Einarsson, fyrrverandi mjólkurbílstjóri, var einni fluttur á Hjallatún.„Síðan er hringt í mömmu á miðvikudegi fyrir tveimur vikum og henni sagt að hann verði fluttur í Vík fyrir helgi, það þurfi að losa plássið á sjúkrahúsinu,“ segir Margrét Unnur Sigtryggsdóttir. Margrét Unnur segir að það sé ekki nóg að gera þarfagreiningar og útbúa skýrslur á vegum hins opinbera, allt mjög fínt á blaði, en síðan verði ekkert af framkvæmdum. Nú sé búið að loka tveimur dvalarheimilum á Suðurlandi með 50 plássum, Kumbaravogi og Blestastöðum á Skeiðum og að nýtt hjúkrunarheimili á Selfossi verði ekki tilbúið fyrr en um mitt ár 2019. Sjúkrahúsið hér á Selfossi er rétt við heimili Ágústu og Sigtryggs aðeins 200 metrum frá. En nú þarf Ágústa að fara 260 kílómetra til að heimsækja manninn sinn. Báðar fjölskyldurnar eru sammála um að mennirnir fái góða þjónustu í Hjallatúni og þeim líði þar vel. „Og að leggja þetta á eldra fólk, að það þurfi að vera stressað og leitt, á þessum tíma, það er lítilsvirðing. Við viljum fá hann hingað á Selfoss, eða þá allavega frekar til Reykjavíkur, heldur en í Vík, það er nær okkur,“ segir Margrét Unnur. Eygló Jóna segist líka vilja fá sinn mann nær sér.Og þú getur ekkert talað við hann í síma? „Nei, hann hefur eiginlega misst röddina, það er eiginlega mjög erfitt og þó það sé hækkað í heyrnartækjunum hjá mér þá heyri ég bara ekkert betur í honum.“
Mest lesið Kosningavaktin: Íslendingar ganga að kjörborðinu Innlent Sat yfir líki í fjóra sólarhringa Innlent Gaf sig fram við lögreglu blautur og kaldur eftir tvo daga á vergangi Innlent Oddný gleymir aldrei símtali Bjarna Ben Innlent Enn að átta sig á breyttri stöðu eftir tapið fyrir Þórdísi Innlent Skilríki afhent í Hagkaupum í Skeifunni Viðskipti innlent Ragnar Þór tekur sæti Tomma og verður oddviti Innlent Lygavaðall um Þórdísi og enginn sakni vinstrisins Innlent Lögreglustjóri skýtur á Grindavíkurnefnd Innlent Ekið á tvo á gatnamótum við Kringlumýrarbraut Innlent Fleiri fréttir Grindavík eins og „Tsjernobyl án kommúnisma“ „Ég hef alveg trú á að við komumst í gegnum þetta“ Tæpur þriðjungur vill Kristrúnu í forsætisráðuneytið „Stjórnmálaferill minn var víst stuttur“ Græningjar leita að þjóðþekktum einstaklingi Stefán hélt starfinu með naumindum „Ég fór ekki á kókaíntripp eða kvennafar, ég fór á kosningaflipp“ Ný könnun, frægir á þing og Íslandsmet í augsýn Óvenjuleg aukin virkni við Geysi Alma og Guðmundur Ari leiða í Kraganum Ragnar Þór tekur sæti Tomma og verður oddviti Leitað að sex ungmennum um helgina og eitt enn týnt „Hefði kannski verið heppilegra að allt væri komið“ Oddný gleymir aldrei símtali Bjarna Ben Ekið á tvo á gatnamótum við Kringlumýrarbraut Vilja skýrari svör um afgreiðslu fjárlaga og þingslit Stunguárásin í Grafarvogi: Grunar ekki að málið tengist skipulagðri glæpastarfsemi Ekkert drama á bak við frestun fundarins Faðirinn áfram í gæsluvarðhaldi Bæjarstjóri dembir sér í landsmálin Gaf sig fram við lögreglu blautur og kaldur eftir tvo daga á vergangi Kosningapallborð: Kanónur kveðja Brynjar fái þriðja sætið: „Þeir vita meira en ég“ Her af iðnaðarmönnum við framkvæmdir á Stuðlum Grindavík opnuð en lögreglan ósátt við upplýsingagjöf Lygavaðall um Þórdísi og enginn sakni vinstrisins Passi ekki að vera saksóknari og í pólitík á sama tíma Fimm þingmenn af átta horfnir á braut Lögreglustjóri skýtur á Grindavíkurnefnd Enn að átta sig á breyttri stöðu eftir tapið fyrir Þórdísi Sjá meira