Skotárás í skóla í franska bænum Grasse Atli Ísleifsson skrifar 16. mars 2017 12:31 Lögregla að störfum í Grasse. Vísir/Getty
Þrír særðust í skotárás í skóla í franska bænum Grasse í suðausturhluta Frakklands um hádegi. BFMTV greinir frá því að maður vopnaður nokkrum skotvopnum hafi ruðst inn í Tocqueville-skólann , skotið að skólastjóranum og sært tvo til viðbótar. Að sögn Le Figaro er enginn í lífshættu. AFP segir frá því að einn hafi verið handtekinn og er mögulegt að annar árásarmaður hafi lagst á flótta. Hans er leitað. Nice Matin hefur eftir heimildarmönnum sínum að tveir nemendur við skólann hafi skotið að fólkinu. Hinn handtekni er sautján ára gamall.Viðvörun franskra yfirvalda um árásina í Grasse.Vísir/AFPÍ frétt Sky kemur fram að talið er að árásarmennirnir hafi ætlað sér að skjóta samnemenda og að skólastjórinn hafi særst þegar hann reyndi að skerast í leikinn. Aðrir fjölmiðlar segja að skólastjórinn hafi verið skotmarkið. Hinn handtekni á að hafa verið vopnaður riffli, tveimur skammbyssum og tveimur handsprengjum. Frönsk yfirvöld sendi út viðvörun um árás í smáforriti sínu. Búið er að auka öryggisgæslu í öðrum skólum í Grasse og er fólk hvatt til að halda sig innandyra. Talsmaður lögreglu segir enn of snemmt að segja til um hvort um hryðjuverkaárás hafi verið að ræða. Grasse er bær rétt norður af Cannes á Miðjarðarhafsströnd Frakklands.
Mest lesið Orbán ber til baka ummæli ráðgjafa um uppgjöf fyrir Rússum Erlent Loftárásir á meint vopnabúr Hezbollah í Beirút Erlent Draumurinn að fríbúðir skjóti upp kollinum um alla borg Innlent Nýliðar hlakka til að láta að sér kveða: „Finnst vanta fólk eins og mig“ Innlent Mennirnir tveir fundnir Innlent Líf segir söguna um stóladans Mörtu og Hildar dagsanna Innlent Tugir látnir í fjórum ríkjum af völdum Helenar Erlent Listamaðurinn Jón Gnarr hættir og pólitíkusinn tekur við Innlent Ekki hægt að aldursskipta börnum á Stuðlum í miðjum stormi Innlent Netanjahú sagðist mættur til að svara „lygum“ annarra þjóða Erlent Fleiri fréttir Loftárásir á meint vopnabúr Hezbollah í Beirút Orbán ber til baka ummæli ráðgjafa um uppgjöf fyrir Rússum Tugir látnir í fjórum ríkjum af völdum Helenar Borgarstjóri New York lýsir yfir sakleysi sínu Netanjahú sagðist mættur til að svara „lygum“ annarra þjóða Gerðu umfangsmikla atlögu að leiðtoga Hezbollah Selenskí fundaði með Trump Sjö hundruð liggja í valnum eftir vikuna Nýjasti kafbátur Kínverja sökk við bryggju Einn stærsti fellibylur síðustu hundrað ára veldur usla í Flórída Vísbending um að jörðin gæti lifað áfram sem niflheimur Ishiba verður næsti forsætisráðherra Japans Ítalía tekur aftur upp agaviðurlög frá tíma Mussolini Netanyahu hafnar tillögum um vopnahlé milli Ísrael og Hezbollah Vísar á bug tillögum um frið í skiptum fyrir úkraínskt land Ákærður fyrir mútuþægni og fjársvik Þingmaður sagði fólki frá Haítí að „drulla sér“ frá Bandaríkjunum Lögðu hald á síma borgarstjórans Sendir Patriot, svifsprengjur og skotfæri til Úkraínu Nákvæmasta kortið af Vetrarbrautinni til þessa Sýknaður eftir meira en 50 ár á dauðadeild Segir tortímingu eða uppgjöf Hezbollah einu lausnina Alríkisákærur gefnar út á hendur borgarstjóra New York Hótar að beita kjarnorkuvopnum gegn árás með hefðbundnum vopnum Vinna að þriggja vikna vopnahléi á milli Ísrael og Hezbollah Selenskí varar við „kjarnorku hörmung“ Loftárásum ætlað að undirbúa mögulega innrás „Virkið“ Vuhledar að falli komið Skutu skotflaug í Kyrrhafið í fyrsta sinn í rúm fjörutíu ár Manngerð hlýnun gerði flóðin í Evrópu tvöfalt líklegri en ella Sjá meira