Erlent

Rúta keyrði inn í mannþvögu á Haítí: Að minnsta kosti 34 látnir

Nína Hjördís Þorkelsdóttir skrifar
Slysið varð við bæinn Les Gonaives.
Slysið varð við bæinn Les Gonaives. vísir/googlemaps
Að minnsta kosti 34 eru látnir eftir að rútuslys á Haítí. Slysið varð með þeim hætti að rúta keyrði inn í mannþvögu nálægt bænum Les Gonaives á norðurhluta Haítí.

Samkvæmt fréttastofu Reuters eru jafnframt 17 særðir eftir slysið.  

Rútan var á leið frá borginni Cap Haitien til höfuðborgarinnar Port-au-Prince þegar atvikið átti sér stað.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×