Innlent

Bílvelta á Sæbraut í nótt og ökumaður flúði af vettvangi

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Eins og sjá má er bíllinn mikið skemmdur eftir veltuna.
Eins og sjá má er bíllinn mikið skemmdur eftir veltuna. Vísir/TÞÞ
Ökumaður flúði af vettvangi bílveltu undir miðnætti í Vogahverfinu í gærkvöldi. Eins og sjá má á myndinni að ofan er bíllinn mikið skemmdur en ökumaður náði þrátt fyrir það að yfirgef a vettvanginn.

Blaðamaður Vísis sem kom að vettvangi fékk þær upplýsingar frá vitnum að lögreglumenn á bílum og fótgangandi leituðu ökumannsins í Vogahverfinu en bílveltan varð á gatnamótum Sæbrautar og Skeiðarvogar.

Ekki hefur náðst í lögreglu það sem af er morgni vegna málsins.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×