Lífið

Svona klæða stjörnurnar af sér kuldann

Guðný Hrönn skrifar
Sienna Miller, Gigi Hadid og Bella Hadid.
Sienna Miller, Gigi Hadid og Bella Hadid. NORDICPHOTOS/GETTY
Eins og sjá má á meðfylgjandi myndum láta stjörnurnar smá kulda ekki stoppa sig í að vera súpersmart. Pelsar og síðar kápur eru greinilega aðalmálið ef marka má stjörnurnar Kate Moss og Siennu Miller.

Leikkonan Sienna Miller lét sig ekki vanta á sýningu Christian Dior í París. Miller var ansi flott í blómakjól frá Dior og síðri kápu.

Fyrirsætan Gigi Hadid heimsótti skrifstofu tískuhúss Chanel í París seinasta sunnudag. Hún klæddist háglansandi buxum, skærbleikum jakka og Dr. Martens skóm á meðan systir hennar, fyrirsætan Bella Hadid, klæddist hönnun frá Baja East.

Kim Kardashian, Rihanna og Kate Moss.NORDICPHOTOS/GETTY
Kim Kardashian var flott að vanda þegar hún klæddist þykkum pels og víðum íþróttabuxum þar sem hún gekk um götur New York borgar í seinasta mánuði.

Rihanna var þá einstaklega smart á sýningu Christian Dior á tískuvikunni í París. Hún klæddist síðri kápu úr haustlínu Dior.

Kate Moss hélt svo á sér hita með hlýjum pels á sýningu Fendi í París. Það gerði fyrirsætan og raunveruleikastjarnan Kendall Jenner líka, en hún klæddist stuttum pels og háum buxum.

Fyrirsætan Kendall Jenner.
.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×